Enski boltinn

Um­deildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham

Valur Páll Eiríksson skrifar
Tottenham er sagt hafa áhuga á Balogun, sem er uppalinn hjá Arsenal.
Tottenham er sagt hafa áhuga á Balogun, sem er uppalinn hjá Arsenal. John Dorton/USSF/Getty Images

Tottenham leitar framherja fyrir komandi átök í ensku úrvalsdeildinni. Liðið er sagt hafa augastað á fyrrum leikmanni Arsenal.

Folarin Balogun varð í sumar einn umtalaðasti fótboltamaður heims þegar leikbanni hans á miðju heimsmeistaramóti var aflétt með sögulegum hætti, og í bága við allar reglur FIFA.

Donald Trump Bandaríkjaforseti hreykti sér af því að hafa hringt í Gianni Infantino, forseta FIFA, vegna leikbannsins og hafi þar af leiðandi fengið því hnekkt.

Balogun mátti því leika með Bandaríkjunum í leik við Belgíu á HM en bandaríska liðið tapaði þeim leik. Balogun sagði eftir leikinn að umræðan vegna bannsins hafi haft slæm áhrif á hann, en hann skoraði alls þrjú mörk í fjórum leikjum fyrir bandaríska landsliðið á mótinu.

Balogun er 25 ára gamall og leikur fyrir Mónakó í Frakklandi. Hann er orðaður við Tottenham á Englandi, en Balogun ólst upp í unglingastarfi erkifjenda Spurs í Arsenal.

Tottenham er sagt leita framherja fyrir komandi leiktíð í ensku úrvalsdeildinni og er einnig orðað við Nicolas Jackson, framherja Chelsea, sem er að líkindum á förum.

Tottenham hefur Brasilíumanninn Richarlison og enska framherjann Dominic Solanke fyrir í hópi liðsins en óvíst er hvort Richarlison verði áfram leikmaður liðsins, þar sem hann hefur verið orðaður við brottför.


Tengdar fréttir

Balogun viðurkennir að inngrip Trumps hafi haft truflandi áhrif

Folarin Balogun, einn umtalaðasti maður heimsmeistaramótsins í fótbolta, segir að allt fjaðrafokið í kringum leikbann hans sem var aflétt hafi haft truflandi áhrif á undirbúning bandaríska landsliðsins fyrir leikinn gegn Belgíu í sextán liða úrslitum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×