Metfjöldi nýrra þjálfara Valur Páll Eiríksson skrifar 4. ágúst 2026 09:32 Maresca, Arbeloa, Iraola og Alonso eru fjórir af níu nýjum stjórum í ensku úrvalsdeildinni fyrir komandi tímabil. Mynd/EPA Rétt rúmar tvær vikur eru þar til upphafssparkið verður tekið í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Nokkur spurningamerki eru fyrir komandi leiktíð eftir HM-sumar og metfjölda þjálfarabreytinga fyrir komandi tímabil.
Fjölmörg félög eru talin eiga eftir að gera töluverðar breytingar á leikmannahópi sínum þó stutt sé til stefnu. HM í fótbolta hafi frestað einhverjum skiptum leikmanna er mynd fer að koma á hópana sem berjast um enska meistaratitilinn, sæti í Evrópukeppnum og að bjarga sér frá falli. Töluverður fjöldi félaga skildi ósáttur við síðustu leiktíð og taldi best að breyta um þjálfara á meðan einhverjir stjórar töldu sig þurfa að leita nýrra áskorana. Níu nýir Allt eru níu lið af tuttugu í deildinni með aðra stjóra í ár en þau voru með í fyrra. Liverpool rak Arne Slot og réði þess í stað Andoni Iraola frá Bournemouth. Bournemouth leitaði til Þjóðverjans Marco Rose. Enzo Maresca er nýr þjálfari Manchester City eftir að Pep Guardiola lauk sinni glæstu stjóratíð þar. Xabi Alonso tók við Chelsea, sem Maresca þjálfaði stærstan hluta síðustu leiktíðar, af Liam Rosenior sem stoppaði stutt við. Glasner færði sig milli liða, frá Crystal Palace til Nottingham Forest.Stu Forster/Getty Images Oliver Glasner hætti með Crystal Palace og tók við Nottingham Forest af Portúgalanum Vítor Pereira sem var sagt upp. Frakkinn Pierre Sage tók við af Glasner hjá Crystal Palace. Spánverjinn Álvaro Arbeloa tók þá við Fulham af Marco Silva, sem hætti til að taka við Benfica í Portúgal. Gary O‘Neil var ráðinn sem nýr stjóri nýliða Ipswich eftir að Kieran McKenna sagði upp. Þá verður Newcastle með nýjan stjóra eftir að Eddie Howe sagði upp fyrir helgi. Matthias Jaissle mun taka við þar, þegar hann fær atvinnuleyfi. Matthias Jaissle tekur við Newcastle á næstu dögum.EPA/CHRISTIAN BRUNA Að þessum níu þjálfurum undantöldum eru tveir til viðbótar á leið inn í sína fyrstu heilu leiktíð með sín félög; Michael Carrick, sem tók við Manchester United í janúar, og Roberto De Zerbi sem hóf að þjálfa Tottenham í lok mars. Mætir öðrum nýjum í fyrstu sex leikjunum Það eru níu nýju stjórarnir í deildinni. Þeir hafa ekki verið svo margir nokkurn tíma áður en fyrr met var fyrir sléttum áratug, tímabilið 2016-17, þegar átta lið hófu tímabilið með nýja menn við stjórnvölin. Það var fyrsta tímabil Pep Guardiola í Manchester og Antonio Conte var einnig nýr hjá Chelsea, og stýrði liðinu til Englandsmeistaratitilsins í fyrstu tilraun. Antonio Conte stýrði Chelsea til Englandsmeistaratitilsins á fyrstu leiktíð sinni, fyrir áratug síðan.Vísir/EPA Áður voru sjö þjálfaraskipti fyrir leiktíðina 1995-96 og sex fyrir tímabilið 2012-13. Þrír leikir í fyrstu umferð deildarinnar verða milli nýrra stjóra. Fulham mætir Chelsea, þar sem fyrrverandi liðsfélagarnir hjá Liverpool og Real Madrid, Arbeloa og Alonso takast á. Manchester City mætir Bournemouth og Liverpool fer á St. James‘ Park að mæta Newcastle. Andoni Iraola, þjálfari Liverpool, mætir öðrum nýjum stjórum í fyrstu sex leikjum tímabilsins; gegn Forest, Ipswich, Fulham, Bournemouth og Manchester City í leikjunum fimm eftir þann fyrsta við Newcastle.
Enski boltinn Mest lesið Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ „Þetta snýst ekki um mig“ „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City De Zerbi kátur eftir leik: „Nú er þetta fullmótað lið“ Sjá meira