Rúnar fékk rautt: „Örstutt bræðiskast“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 1. ágúst 2026 16:57 Með sigrinum í dag komust strákarnir hans Rúnars Kristinssonar upp í 2. sæti Bestu deildar karla. vísir/anton Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, var ánægður með sigurinn á ÍBV, 1-2, í Þjóðhátíðarleiknum. Hann hafði ýmislegt við dómgæsluna að athuga og fékk rauða spjaldið undir lok leiks. „
Ég snöggreiddist. Hann [Þórður Þorsteinsson Þórðarson] dæmdi brot á minn mann og gaf honum gult spjald. Ég vissi að hann væri að fara í bann og við vorum þá þegar búnir að missa tvo í bann í næsta leik,“ sagði Rúnar við íþróttadeild eftir leikinn. „Mér fannst það bara rangt af honum og var að pirra mig. Ég grýtti brúsanum í vegginn. Ég má það víst ekki og verð bara að taka þetta á mig. Þetta var örstutt bræðiskast sem ég tók en ég var búinn að vera slakur allan leikinn og ræða við menn í rólegheitum. Þetta er það sem gerist. Maður hefur skap og vill vernda sína menn og líka passa upp á að koma skilaboðum til dómara. Skilaboðin voru ekki að kasta brúsanum í vegginn. Ég var búinn að ræða við fjórða dómara og ég var eitthvað voðalega reiður.“ Mikil harka hljóp í leikinn í seinni hálfleik eftir frekar rólegan fyrri hálfleik. „Mér fannst Eyjamenn byrja leikinn með krafti og ákefð og voru ákveðnari. Mér fannst þeir fá leyfi til þess en um leið og við gerum eitthvað. Ég get tekið dæmi þegar Sigurður [Arnar Magnússon] brýtur af sér og við fáum vítaspyrnu. Það var ekkert spjald á hann en svo er eitthvað smá peysutog þegar við fáum á okkur víti og þá kemur gult spjald. Maður skilur ekki að það sé ekki eins beggja vegna en það er kannski einhver stigsmunur á þessu, ég veit það ekki. Mér fannst bara halla dálítið mikið á okkur,“ sagði Rúnar. Mundi ekkert eftir fyrri hálfleiknum Simon Tibbling fékk höfuðhögg í byrjun leiks og þurfti að fara af velli. „Hann fékk boltann í höfuðið og mundi ekki eftir neinu sem var búið að gerast þessar mínútur sem hann var inn á, sem voru ekki margar. Það var farið með hann upp á spítala en hann er kominn til baka og veit allavega hvað er búið að gerast í seinni hálfleik. En hann man voða lítið eftir því sem gerðist í fyrri hálfleik. Þannig að við þurfum bara að bíða og sjá hvað gerist með hann,“ sagði Rúnar. Völlurinn þurr Þjálfarinn kvaðst mjög sáttur með sigurinn í dag. „Það er frábært að koma hingað til Vestmannaeyja. Eins og ég sagði fyrir leikinn eru Eyjamenn með flott lið, spila fínan fótbolta og ef þú nærð ekki að stoppa þá í þeirra uppspili geta þeir sært þig. Þeir fundu alltof mikið af holum í okkar varnarleik, sérstaklega inni á miðsvæðinu, megnið af leiknum. Við reyndum að laga það í hálfleik en það gekk ekki alveg,“ sagði Rúnar. „Þeir eru með frábæra leikmenn í Vicente Valor og Alex Frey [Hilmarssyni] sem voru inni á miðsvæðinu og fóru í þessar holur. Þeir gerðu okkur erfitt fyrir en fyrir okkur snerist þetta bara um að vinna leikinn. Þetta var ekki fallegur fótboltaleikur. Það voru ekki mikil gæði og völlurinn varð mjög þurr mjög snemma. Bleytan sem var sett fyrir leikinn var horfin snemma og ég sá þá ekki vökva fyrir seinni hálfleikinn. Það var þurrt, rok og þá er voða erfitt að halda einhverju tempói í sendingum og þetta varð fyrir vikið mikill baráttuleikur. Mér er alveg sama; þrjú stig skipta mig og liðið mitt öllu máli. Ég sagði við strákana núna að fara frá Vestmannaeyjum með þrjú stig er glæsilegt og frábærlega vel gert. Hvernig við gerðum það skiptir ekki máli. Þótt menn vilji alltaf spila flottan fótbolta snýst þetta um að safna stigum, vera á góðum stað í deildinni og ná árangri og við erum bara í þeim bransa.“ Næsti leikur Fram er gegn KR en Rúnar fylgist með þeirri viðureign úr stúkunni þar sem hann tekur út leikbann.
Besta deild karla Fram ÍBV Mest lesið Haaland segir Hjörvari að hann hafi ekki verið rangstæður Enski boltinn „Hræddur um að Höddi Magg hafi fengið hland fyrir hjartað“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Fylkir - HK 2-2 | Þrjú rauð spjöld og Fylkir í úrslit Íslenski boltinn Manchester-borg er blá eftir tíu manna sigur Enski boltinn Uppgjörið: KR - ÍA 5-1 | Markahæstir í sögunni Íslenski boltinn Stórmerkileg byrjun Freys hjá Rosenborg Fótbolti Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs Íslenski boltinn Arteta heitt í hamsi: „Þetta er óásættanlegt“ Enski boltinn Kemur fyrirliða KR til varnar: „Talar beint frá hjartanu“ Íslenski boltinn „Hver einasti maður ákveðið að við færum beint niður“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Fylkir - HK | Heimamenn með eins marks forskot í úrslitaleikinn Þróttur tryggði sig í úrslitaleikinn „Mótið í rauninni búið“ „Við komum svo voða skrítnir inn í seinni hálfleikinn“ „Hræddur um að Höddi Magg hafi fengið hland fyrir hjartað“ „Fannst dómarinn missa svolítið tökin á leiknum” Uppgjörið: Stjarnan - ÍBV 2-0 | Warén jók á áhyggjur Eyjamanna Uppgjörið: KR - ÍA 5-1 | Markahæstir í sögunni Markaskorari Vals óviss um framtíð sína Uppgjörið: Valur - Þór Ak. 4-1 | Valsmenn ekki í vandræðum með Þórsara Uppgjörið: FH - KA 3-0 | FH-ingar fjórum stigum frá fallsvæðinu Þróttarar brutu bikarinn Kemur fyrirliða KR til varnar: „Talar beint frá hjartanu“ „Hver einasti maður ákveðið að við færum beint niður“ Stöðvaði leikinn og skutlaði sér á eftir gæs Grindavík/Njarðvík - Þróttur R. 1-2 | Þróttur bikarmeistari í fyrsta sinn Valshjartað slær enn hjá hetju KR KR upp í Bestu deildina MSK Zilina að kaupa Dag Orra frá Val Þetta verður spennuleikur í Laugardalnum KR með örlögin í sínum höndum og sæti í Bestu deildinni í boði Töpin sitja ekki í leikmönnunum fyrir úrslitaleikinn Alþjóðadómarinn verður yfirþjálfari Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Myndasyrpa: Gleðin við völd í Laugardal „Ef ég hefði fengið að velja þá hefði ég alltaf valið eldinguna“ „Maður er í þessu til þess að vinna titla“ „Getur vel verið að ég sé bara með Aftureldingargleraugu“ „Við náðum einum af þessum stóru í ár“ „Maður skal brennimerkja þessa stund í hjarta sínu og sál“ Sjá meira