„Mig dreymdi alla daga um að spila með Messi“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 31. júlí 2026 09:31 Inter Miami Casemiro Soccer Casemiro poses with his new Inter Miami jersey Thursday, July 30, 2026, in Miami. (AP Photo/Marta Lavandier) Casemiro er genginn til liðs við Inter Miami og gæti fengið langþráðan draum uppfylltan, að spila með Lionel Messi.
Casemiro skrifaði undir hjá Inter Miami eftir HM í sumar en hann var leikmaður Manchester United í fjögur ár fyrir. Áður spilaði Casemiro fyrir Real Madrid með Cristiano Ronaldo, helsta erkifjanda Messi. Casemiro vann Meistaradeildina fimm sinnum á ferli sínum hjá Real Madrid, með Cristiano Ronaldo í fararbroddi fjórum sinnum. Quality Sport Images/Getty Images Brasilíumaðurinn virðist ekki eiga erfitt með að aðlagast umhverfinu hjá Inter Miami, þar sem Argentínumaðurinn Lionel Messi ræður ríkjum með Rodrigo de Paul sér til halds og trausts. „Það var alveg ljóst að ef ég myndi spila fyrir lið í MLS deildinni yrði það Inter Miami,“ sagði Casemiro eftir að hafa spilað sinn fyrsta leik fyrir liðið í gærkvöld, í 1-0 sigri gegn CF Montreal. Messi tók ekki þátt í leiknum í gærkvöldi. Hann er enn í sumarfríi eftir HM og óvíst er hver næstu skref hjá honum verða. „Öllum leikmönnum dreymir um að spila með einum besta leikmanni allra tíma. Ég er að lifa drauminn, ég vil hjálpa honum að halda áfram og hjálpa honum að vinna fleiri titla,“ sagði Casemiro og líkti Messi síðan við Guð almáttugan á fótboltavellinum. „Ég hef alltaf viljað spila með þeim bestu. Mig dreymdi alla daga um að spila með Messi. Ég veit að það er ómögulegt að stoppa hann, ég þurfti alltaf hjálp frá liðsfélögum mínum til að gera það,“ bætti Casemiro við samkvæmt Marca.
Bandaríski fótboltinn Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti „Guð morning!“ Enski boltinn Fleiri fréttir Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Sjá meira