Svarar Romero fullum hálsi: „Veit um hvað ég er að tala“ Valur Páll Eiríksson skrifar 17. júlí 2026 12:46 Cristian Romero skaut til baka á Gary Neville. Samsett/Getty Sparkspekingurinn Gary Neville stendur við orð sín um miðvarðapar argentínska landsliðsins sem spilar til úrslita á HM á sunnudaginn eftir sigur á Englandi í fyrrakvöld. Cristian Romero sagði Neville heimskan eftir leikinn.
Neville sagði miðvarðapar Argentínu, Romero, leikmann Tottenham, og Lisandro Martínez, leikmann Manchester United, „besta, versta miðvarðapar heims“ í aðdraganda leiksins. Argentína vann leikinn við England 2-1 í fyrrakvöld og Romero reif kjaft við Neville í viðtali sigurreifur eftir leik. Hann sagðist vonast til að hann yrði ekki eins heimskur og Neville eftir að ferli hans lýkur. Neville var beðinn um viðbrögð við ummælum Romero og stóð ekki á svörum. Hann ítrekar þá skoðun sína að Romero og Martínez spili mótsagnakenndan leik sem einkennist af frábærum tilþrifum og fáránlegum mistökum. „Ég sagði að þeir gefi andstæðingunum mörk. Þetta lið hefur fengið á sig sex mörk í fjórum leikjum í útsláttarhlutanum. Hver veit hvar liðið væri ef Messi væri ekki frammi?“ „Þessir tveir ættu að knúsa hann á hverjum degi. Hreinskilnislega hefur Messi þurft að draga þá upp úr forarpittinum þegar þeir hafa fengið á sig tvö mörk gegn Egyptalandi og Grænhöfðaeyjum, og eitt gegn Sviss og Englandi,“ segir Neville og bætir við: „En ég bætti við að þeir væru ótrúlegir, það var það sem ég sagði. Krafturinn í þeim og hvernig þeim tekst að rífa liðið áfram, nær frá því magnaða í fáránleika.“ Gary Neville responds after Cristian Romero called him out over his Argentina criticism.🤯"I think I know what I'm talking about when I watch a player.""If they didn't have Lionel Messi up front, those two should go and hug him every single minute of every single day.""They… pic.twitter.com/lwTdpTCUFY— HK (@HKFinalThird) July 16, 2026 „Romero spilaði í liði sem var næstum fallið úr ensku úrvalsdeildinni og fékk á sig 65 mörk. Ég tel mig vita hvað ég er að tala um þegar ég fylgist með leikmönnum. Hann er hæfileikaríkur, og Martínez einnig, en þeir gera urmul mistaka og þeir hafa fengið á sig mörk vegna þessa,“ segir Neville. „Ég bara veit ekki um leikmenn sem eins mikill munur er á í stökum leikjum og mótsagnirnar í spilamennsku þeirra eru gapandi,“ „Argentína vann leikinn ekki vegna miðvarðanna. Án Lionel Messi væri þetta lið ekki á þessum stað,“ segir Neville.
Enski boltinn Tottenham Hotspur Manchester United Argentína HM 2026 í fótbolta Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport „Guð morning!“ Enski boltinn Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Fótbolti Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn Fleiri fréttir „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjá meira