Fáum svo mörg færi að það er erfitt að skora ekki Gunnar Egill Daníelsson skrifar 16. júlí 2026 22:30 Ída Marín Hermannsdóttir er markahæst í Bestu deild kvenna með níu mörk í fyrstu ellefu umferðunum. Vísir/Anton Ída Marín Hermannsdóttir, leikmaður FH, lék eins og svo oft áður vel með liðinu og skoraði eitt mark þegar það vann stórsigur á Grindavík/Njarðvík, 6-1, í 11. umferð Bestu deildarinnar í fótbolta í Njarðvík í kvöld.
Þrátt fyrir lokatölurnar var það Grindavík/Njarðvík sem náði forystunni snemma leiks. „Ég held að við höfum, eins og svo oft áður, byrjað svolítið hægt og fengið mark á okkur. Við vorum bara sofandi eins og í síðasta leik. En síðan þegar við komumst í okkar flæði og hvernig við spilum er erfitt að skora ekki. Við fáum svo mörg færi og gerum þetta vel,“ sagði Ída Marín í samtali við Sýn Sport eftir leik. Athygli vakti að FH sló aldrei slöku við og hugðist allan tímann bæta við fleiri mörkum. „Ég held bara að okkur finnist ótrúlega gaman að skora, spila og spila saman af því að við getum það. Þannig að af hverju ekki að fara bara aftur og aftur eins oft og við getum?“ sagði hún hreinskilin. Vill ekki tjá sig um sögusagnir Með sigrinum fór FH á topp Bestu deildarinnar og er þar með tveggja stiga forystu. Spurð hvort FH geti staðið uppi sem Íslandsmeistari stóð ekki á svörum: „Að sjálfsögðu getum við það, já.“ Óumflýjanlega barst talið þá að framtíð Ídu Marínar, sem er samkvæmt Fótbolta.net undir smásjá enska úrvalsdeildarfélagsins Charlton Athletic. Hún hefur ekki viljað tjá sig um þá orðróma að hún sé á leið út í atvinnumennsku og engin breyting var á því í kvöld. „Ég ætla ekki að kommenta á þetta. Ég vil það ekki fyrr en ég veit eitthvað,“ sagði Ída Marín Hermannsdóttir leyndardómsfull en kát í samtali við Sýn Sport.
Besta deild kvenna FH Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Íslenski boltinn Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Enski boltinn Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Enski boltinn „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins „Óvíst hvar Stefan Ljubicic mun spila“ „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Óskar Hrafn: „Krefst þess að menn séu ekki saddir“ Sjá meira