Englendingar snertu varla boltann eftir markið sitt Sindri Sverrisson skrifar 16. júlí 2026 11:32 Lionel Messi heldur boltanum frá Harry Kane í undanúrslitunum. Getty Yfirburðir Argentínumanna voru algjörir á þeim tæplega 40 mínútum sem enn voru eftir af leiknum, eftir að England komst í 1-0 í undanúrslitum á HM í fótbolta í gær.
Anthony Gordon kom Englandi yfir á 55. mínútu leiksins, eftir góða fyrirgjöf frá Morgan Rogers, en eftir þetta pökkuðu Englendingar hreinlega í vörn og virtust aðeins ætla að hanga á forskotinu út allan leikinn. Frá marki Gordons og fram yfir 2-1 sigurmark Lautaro Martínez voru Englendingar aðeins með boltann í 12% leiktímans, gegn 88% hjá Argentínu með Lionel Messi í broddi fylkingar. 12% - Average possession between Anthony Gordon's opener and Lautaro Martínez's winner (55th to 92nd minute):12% - 🏴 England88% - 🇦🇷 ArgentinaTrapped. pic.twitter.com/J5S9wlHCpx— OptaJoe (@OptaJoe) July 15, 2026 Argentínumenn voru ekki bara mikið meira með boltann heldur sköpuðu þeir sér færi til að jafna leikinn og til viðbótar við mörkin tvö sem þeir skoruðu þá átti til að mynda Alexis Mac Allister tvær tilraunir í markrammann. Það var Enzo Fernández sem jafnaði metin með góðu skoti utan teigs á 85. mínútu, eftir stutta sendingu frá Messi, og Martínez skoraði svo sigurmarkið með skalla eftir fyrirgjöf frá Messi á 2. mínútu uppbótartímans. Messi hefur nú samtals átt 33 mörk eða stoðsendingar í sögu HM, eða átta fleiri en næsti maður, Kylian Mbappé. Most goals + assists in World Cup history:33 - Lionel Messi3231302928272625 - Kylian Mbappé242322212019 - Ronaldo Nazario & Miroslav KloseWay out in front. 🐐 pic.twitter.com/JdPmJ4O9Nr— Squawka (@Squawka) July 15, 2026 Thomas Tuchel, þjálfari Englands, hefur verið harðlega gagnrýndur eftir leikinn fyrir það hvernig enska liðið leyfði því argentínska að kæfa sig í seinni hálfleiknum. Hann gerði varnarsinnaðar skiptingar og setti til að mynda miðvörðinn Ezri Konsa inn fyrir Anthony Gordon á 72. mínútu, og svo þá Dan Burn og Nico O‘Reilly fyrir Declan Rice og Reece James á 82. mínútu. Eftir að Argentína komst yfir reyndi Tuchel að bregðast við og skipti Ivan Toney og Marcus Rashford inn á en þá var of lítill tími til stefnu og Argentína vann sanngjarnan sigur.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport „Guð morning!“ Enski boltinn Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Fótbolti Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn Fleiri fréttir Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Siggi Raggi getur gert NSÍ að Færeyjameisturum í dag Sjá meira