Maður dagsins á HM: Byrjaði hjá Barcelona en nú kominn til Real Madrid Andri Broddason skrifar 15. júlí 2026 10:00 Marc Cucurella hefur staðið sig frábærlega fyrir spænska landsliðið á HM og er í miklu uppáhaldi hjá liðsfélögum. Daniela Porcelli/Getty Images Marc Cucurella spilaði frábærlega í undanúrslitaleik milli Spánar og Frakklands þar sem Spánn bar sigur úr bítum 2-0. Hann stóð sig frábærlega í vörn Spánar og á stóran þátt í að stjörnuleikmenn á borð við Ousmane Dembele sáust varla í leiknum.
Spánn er komið í úrslit heimsmeistaramótsins í fótbolta eftir sigur á Frakklandi í undanúrslitum. Þetta er í annað skiptið sem Spánn kemst í úrslitaleikinn en Spánn varð heimsmeistari árið 2010. Marc Cucurella spilaði frábærlega fyrir Spán í gærkvöldi og hefur gert það allt mótið. Marc Cucurella fæddist í Katalóníu og ólst upp hjá yngri liðum Espanyol. Eftir að honum gekk vel þar fór hann til Barcelona og spilaði fyrir B-lið þeirra. Hann fékk þó ekki tækifæri til að spila fyrir aðalliðið og endaði á að fara til Getafe í spænsku úrvalsdeildinni. Þar spilaði hann vel og endaði á að vera keyptur til Brighton í ensku úrvalsdeildinni. Þegar hann var kominn þangað vakti hann athygli hjá ýmsum stórum félögum og eftir aðeins eitt tímabil hjá Brighton var hann keyptur yfir til stórliðs Chelsea. Til að byrja með var hann gagnrýndur þar vegna þess að liðið borgaði 60 milljónir evra fyrir hann og stuðningsmönnum Chelsea fannst leikmaðurinn ekki réttlæta verðmiðann. Það átti eftir að breytast því með árunum átti hann eftir að sanna sig fyrir félaginu og hefur verið einn besti leikmaður liðsins síðustu ár. Eftir að hafa verið hjá Lundúnafélaginu í fjögur tímabil var hann keyptur yfir til Real Madrid á Spáni rétt áður en heimsmeistaramótið byrjaði. Hann mun því fara til Madridar eftir úrslitaleikinn á heimsmeistaramótinu. Cucurella hefur einnig verið lykilleikmaður fyrir spænska landsliðið og hefur spilað fyrir öll yngri lið Spánar. Í úrslitaleik Evrópumótsins árið 2024 lagði Cucurella upp sigurmark Spánar sem innsiglaði sigur á Englandi 2-1. Eftir að Spánn varð Evrópumeistari var mikið fagnað og myndband af Marc Cucurella fór í dreifingu þar sem hann söng lag um sig sjálfan. Erling Haaland caught strays from Marc Cucurella at Spain's Euro 2024 celebrations 😅 pic.twitter.com/mszt77nFmP— GOAL (@goal) July 16, 2024 Á síðasta ári opnuðu Marc Cucurella og kona hans Claudia Rodriguez sig um hvernig það er að ala upp son með einhverfu. Þau setja börnin alltaf í fyrsta sæti og reyna að láta honum líða eins vel og völ er á.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Kokhraustur eftir neyðarfund Fótbolti Fann fyndna lausn á fljótfæru húðflúri sínu Enski boltinn „Gjörsamlega hömruðum járnið á meðan það var heitt“ Sport Infantino vill skipta við Marokkó á stuðningi við sig og úrslitaleik HM Fótbolti „Það er skellur“ Íslenski boltinn Sagði það „augljósa“ ákvörðun að velja Man City frekar en Arsenal Enski boltinn Uppgjörið: FH - KR 1-1 | Ótrúlegt að KR hafi ekki unnið Íslenski boltinn Brann tapaði en AGF vann liðið sem lenti í umferðteppu Fótbolti Jaissle ráðinn aðalþjálfari Newcastle Enski boltinn Kjartan Kári á leiðinni í Víking Íslenski boltinn Fleiri fréttir Fann fyndna lausn á fljótfæru húðflúri sínu Kjartan Kári á leiðinni í Víking Kokhraustur eftir neyðarfund Uppgjörið: FH - KR 1-1 | Ótrúlegt að KR hafi ekki unnið „Það er skellur“ Gamli West Ham-leikmaðurinn allt í öllu á sigri á Arsenal Jaissle ráðinn aðalþjálfari Newcastle Uppgjörið: Keflavík-KA 3-0 | Þrjú mörk á níu mínútum kláraði KA Sagði það „augljósa“ ákvörðun að velja Man City frekar en Arsenal Brann tapaði en AGF vann liðið sem lenti í umferðteppu Tryggðu sigurinn eftir að Emelía kom inn á völlinn Konan sem á að rífa upp gengi Manchester United Como með mjög strangar miðareglur en hlífa börnunum Infantino vill skipta við Marokkó á stuðningi við sig og úrslitaleik HM Lukaku lætur ekki sjá sig Neymar „hagaði sér eins og trúður“ Chelsea tapaði fyrsta leik Mudryks í tvö ár Figo hraunar yfir Infantino Hlín vann systraslaginn Real nálgast samkomulag um Diomandé Salah mættur til Tyrklands Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Sjáðu markið sem lyfti Þór af botninum Diljá með tvennu í öruggum Evrópusigri Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham FH fær danskan framherja Spenntur að mæta KR í fyrsta sinn Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG United ekki lengi þjálfaralaust „Okkar lang slakasti hálfleikur síðan ég tók við“ Sjá meira