Brjóta lög fótboltans með sýningunni í hálfleik Sindri Sverrisson skrifar 15. júlí 2026 08:00 Það verða ekki bara fótboltastjörnur á borð við Lamine Yamal á vellinum á sunnudaginn, á úrslitaleik HM. Shakira er í glæstum hópi stjarna sem koma fram. Samsett/Getty Sérstök hálfleikssýning í anda Super Bowl, sem haldin verður í hálfleik úrslitaleiks HM í fótbolta á sunnudaginn, mun valda því að hálfleikshléið verður lengra en ætlast er til samkvæmt lögum fótboltans. Erlendir miðlar segja að hléið gæti orðið allt að hálftíma langt.
FIFA hefur sagt að áætlað sé að sjálf sýningin í hálfleik taki 11 mínútur en við það bætist meiri tími og segir BBC að mögulega bætist hið hefðbundna 15 mínútna hlé einfaldlega við þessar 11 mínútur. Samkvæmt BBC er búist við að hálfleikshléið verði 20-25 mínútur og heimildir The Athletic herma að stefnt sé að því að hléið verði um 20 mínútur. The Telegraph og The Times segja að hléið gæti orðið hálftíma langt, eða tvöfalt lengra en vanalegt er. FIFA to break football's laws by having half-time break at World Cup final of up to 30mins to accommodate glitzy Super Bowl-style show. ITV will cover half-time show in full and BBC expected to do so too. https://t.co/Ri0jKslpR1— Martyn Ziegler (@martynziegler) July 14, 2026 Í fótboltalögunum er skýrt að hálfleikshléið skuli ekki vera lengra en 15 mínútur og að því sé aðeins breytt með leyfi dómara leiksins. Leikmenn eru algjörlega óvanir því að hafa lengra hlé í hálfleik og það mun því reyna á Spánverja, og Englendinga eða Argentínumenn, að bregðast við þessum aðstæðum. Hafa má í huga að hálfleikshléið á HM félagsliða í Bandaríkjunum í fyrrasumar, þar sem einnig var boðið upp á sýningu, var 24 mínútna langt. Mikið verður um dýrðir á úrslitaleiknum og á meðal þeirra sem koma fram í hálfleik eru Madonna, Shakira, Justin Bieber og suðurkóreska strákabandið BTS. Fyrir leik munu stjörnur á borð við Tom Cruise, Laura Pausini, Nicole Scherzinger, Robbie Williams og IShowSpeed koma fram og þá mun Jennifer Hudson syngja bandaríska þjóðsönginn.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport „Guð morning!“ Enski boltinn Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Fótbolti Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn Fleiri fréttir Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Siggi Raggi getur gert NSÍ að Færeyjameisturum í dag Sjá meira