Lést aðeins nokkrum vikum eftir að hann var rekinn úr hópi HM-dómara Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. júlí 2026 17:31 HM-dómarinn Rob Dieperink, sem var vikið úr starfi, er látinn. Hér er hann að dæma í hollensku deildinni. Getty/Alex Gottschalk/ Hollenski fótboltadómarinn Rob Dieperink, sem átti að vera VAR-dómari á HM en var vikið úr starfi fyrir mótið vegna ásakana um kynferðisbrot gegn ólögráða einstaklingi, er látinn, 38 ára að aldri. Þetta staðfestir hollenska knattspyrnusambandið.
Dánarorsök Dieperinks er enn ókunn. Lögreglan á svæðinu tjáði Algemeen Dagblad að hún rannsakaði andlát einstaklings en vildi ekki tjá sig frekar um málið að svo stöddu. Dieperink, sem var 38 ára gamall, hafði dæmt í hollensku deildinni frá árinu 2017 og var VAR-dómari á EM 2024. Referee Rob Dieperink dies aged 38 just weeks after being dropped from World Cup over arrest https://t.co/6IZJoEp92t— talkSPORT (@talkSPORT) July 13, 2026 Vegna skorts á sönnunargögnum var aldrei gefin út ákæra á hendur Rob Dieperink, sem var sakaður um kynferðisbrot gegn ólögráða dreng í London eftir leik í Sambandsdeildinni milli Crystal Palace og Fiorentina í apríl, auk tveggja annarra atvika. Eftir að hann fékk ekki að dæma á HM sagði Dieperink í viðtali við hollenska dagblaðið De Telegraaf að hann hefði verið „hafður fyrir rangri sök“. „Það hryggir mig mjög að hafa verið hafður fyrir rangri sök,“ sagði hann. „Frá upphafi hef ég veitt fullt samstarf við lögreglurannsóknina og einnig sýnt Fifa, Uefa og KNVB fulla hreinskilni strax,“ sagði Dieperink. „Ég er þakklátur fyrir þann stuðning sem ég hef fengið frá KNVB og hvernig þeir hafa meðhöndlað þetta mál. Það er miður að Fifa hafi ákveðið að skipa mig ekki lengur á HM, ég er auðvitað vonsvikinn með það,“ sagði Dieperink. Á laugardaginn síðasta dæmdi Rob Dieperink æfingaleik milli hollenska liðsins Go Ahead Eagles og gríska liðsins Apollon Limassol. We zijn geschrokken en diepbedroefd door het overlijden van Rob Dieperink.Met Rob verliezen we een zeer gewaardeerde scheidsrechter, maar bovenal een fijne en betrokken collega.Onze gedachten gaan uit naar zijn familie, vrienden en iedereen die hem dierbaar was. We wensen hen… pic.twitter.com/OO0ReL0i7F— KNVB (@KNVB) July 13, 2026
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti „Guð morning!“ Enski boltinn Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Fótbolti Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Fleiri fréttir Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Siggi Raggi getur gert NSÍ að Færeyjameisturum í dag Infantino segist njóta gríðarlegs stuðnings Sjá meira