Spila að eigin ósk í sömu litum og í leiknum fræga með „hendi guðs“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. júlí 2026 23:32 Diego Armando Maradona skoraði tvö af umtöluðustu mörkum HM-sögunnar í leiknum á móti Englandi í átta liða úrslitum HM í Mexíkó 1986 en þá unnu Argentínumenn Englendinga í bláu búningunum sínum. Getty/Jean-Yves Ruszniewski/Archivo El Grafico Spennan er að magnast fyrir undanúrslitaleik Englands og Argentínu á heimsmeistaramótinu í fótbolta og nú vitum við í hvernig búningum liðin spila í þessum risaleik á miðvikudagskvöldið. Argentínumenn vildu og fengu að spila í lukkubúningi sínum.
Enska landsliðið mun leika í hvítum heimatreyjum sínum en ríkjandi heimsmeistarar Argentínu verða í dökkbláum útivallarbúningi sínum, með svörtum stuttbuxum og sokkum. Þeir hafa aðeins klæðst dekkri búningnum einu sinni á mótinu, í 3-1 sigri sínum gegn Jórdaníu í riðlakeppninni. Argentína hefur samt notið velgengni í útivallarbúningi sínum gegn Englandi á fyrri heimsmeistaramótum og trúa Argentínumenn því sjálfir að þetta sé lukkubúningurinn á móti Englendingum. 🚨 𝗡𝗘𝗪: Argentina officially REQUESTED to play with their away shirt vs. England.They played wearing their away shirt in the 1986 World Cup, when Argentina beat England.— @gastonedul pic.twitter.com/v1MKSzWL57— The Touchline | 𝐓 (@TouchlineX) July 13, 2026 Þeir unnu enska landsliðið 2-1 í átta liða úrslitum árið 1986, þar sem Diego Maradona skoraði markið þar sem hann notaði „hönd guðs“ eins og hann sagði sjálfur. Argentínumenn tryggðu sér einnig sigur í sama varabúningi í vítaspyrnukeppni í 16-liða úrslitum gegn gömlum erkifjendum sínum á mótinu í Frakklandi árið 1998. Heima- og útivallarbúningunum var víxlað árið 2002 fyrir leik þeirra í riðlakeppninni í Japan, þar sem England vann 1-0 sigur í rauðu á meðan Argentína klæddist sínum hefðbundna röndótta búningi. Fjölmiðlar í Argentínu hafa greint frá því að liðið hafi óskað eftir því að klæðast útivallarbúningnum frekar en sínum venjulega ljósbláa og hvíta búningi í undanúrslitaleiknum á miðvikudagskvöld. FIFA vill helst að hvert lið klæðist aðalbúningi sínum, en ef möguleiki er á að litirnir séu of líkir mun sambandið fylgja skrefum til að tryggja að viðunandi litamunur náist. Alþjóðaknattspyrnusambandið reynir einnig að tryggja að andstæður séu á milli dökkra og ljósra búninga í þágu stuðningsmanna með litblindu. England tryggði sér sæti í undanúrslitum með 2-1 sigri gegn Noregi í framlengingu á laugardag, á meðan Argentína vann dramatískan 3-1 sigur á tíu leikmönnum Sviss, einnig í framlengingu, á sunnudag. ¿CÁBALA ARGENTINA? 🇦🇷 La Selección Argentina le solicitó a la FIFA usar el uniforme azul para enfrentar a Inglaterra 🏴 Como en 1986 en el Estadio Azteca… pic.twitter.com/l2JwUnyGkC— Estadio Deportes (@EstadioDxts) July 13, 2026
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti „Guð morning!“ Enski boltinn Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Fótbolti Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Fleiri fréttir Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Siggi Raggi getur gert NSÍ að Færeyjameisturum í dag Infantino segist njóta gríðarlegs stuðnings Sjá meira