Kærastan birti viðbjóðinn: Sörloth sagt að fremja sjálfsvíg eftir tapið á HM Sindri Sverrisson skrifar 13. júlí 2026 07:02 Eftir alla hamingjuna sem fylgdi árangri Norðmanna á HM mátti Alexander Sörloth þola mikið hatur á samfélagsmiðlum þegar Noregur féll úr keppni. Getty/Sebastian Widmann Lena Selnes, unnusta norska landsliðsframherjans Alexanders Sörloth, hefur nú birt hluta af þeim hatursfullu skilaboðum sem hún fékk send eftir að Noregur féll úr leik í 8-liða úrslitum á HM í fótbolta.
Norðmenn náðu sínum besta árangri í sögu HM og mega vera stoltir þrátt fyrir tap í framlengdum leik gegn Englendingum á laugardagskvöld. Sörloth var að vanda í byrjunarliði Noregs en var gagnrýndur fyrir að nýta það ekki betur þegar þeir Erling Haaland komust tveir gegn einum varnarmanni í fyrri hálfleik leiksins, þegar Noregur var 1-0 yfir. Um hann féllu svo hreint hryllilegar athugasemdir að leik loknum og sumar voru sendar á unnustu hans og barnsmóður, Lenu Selnes, sem birti hluta af þeim á Instagram. „Vertu svo vænn að fremja sjálfsvíg, fíflið þitt,“ stóð í einum þeirra. „Segðu kærastanum þínum að hann eigi að fara frá Noregi og stökkva fram af kletti,“ stóð í öðrum en Selnes birti fleiri skilaboð. „HM veitir mikla gleði en líka mikið hatur“ Segja má að sannkölluð þjóðhátíð sé búin að vera í Noregi síðustu vikur og Sörloth og félagar veitt löndum sínum mikla gleði, með frammistöðu sem vakið hefur hrifningu um allan heim, en eins og Selnes benti sjálf á þá getur athyglin einnig verið afar neikvæð. Alexander Sörloth og Erling Haaland glöddu norsku þjóðina með frækinni frammistöðu á HM en urðu að játa sig sigraða gegn Englandi í 8-liða úrslitum.Getty/Steph Chambers „HM veitir mikla gleði en líka mikið hatur. Ég vil eiginlega ekki veita þessu neina athygli en þarf þess eftir svona athugasemdir,“ skrifaði Selnes og bætti við: „Ég vildi að allir myndu hugsa sig aðeins um áður en þeir setja fram svona athugasemdir, sama hverjar aðstæðurnar eru.“ Segir leikmönnum að forðast samfélagsmiðla Ståle Solbakken, landsliðsþjálfari Noregs, segir málið sýna af hverju hann vilji ekki að leikmenn séu á samfélagsmiðlum. „Þetta er sorglegt. Svona er heimurinn í dag. Þess vegna segi ég strákunum að halda sig í burtu frá samfélagsmiðlum,“ sagði Solbakken samkvæmt frétt TV 2.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti „Guð morning!“ Enski boltinn Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Fótbolti Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Fleiri fréttir Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Siggi Raggi getur gert NSÍ að Færeyjameisturum í dag Infantino segist njóta gríðarlegs stuðnings Sjá meira