Goðsögn tekur við eftir vonbrigðin á HM Sindri Sverrisson skrifar 12. júlí 2026 22:32 Diego Forlán hefur litla þjálfarareynslu en er einn besti leikmaður sem spilað hefur fyrir Úrúgvæ. Getty/James Gill Marcelo Bielsa hætti strax sem landsliðsþjálfari Úrúgvæ og kenndi sjálfum sér um eftir að liðið féll úr leik á HM karla í fótbolta. Nú er arftaki hans fundinn.
Það er Diego Forlán, fyrrverandi framherji liða á borð við Manchester United, Villarreal og Atlético Madrid, og einn mesti markahrókur í sögu úrúgvæska landsliðsins, sem tekur við sem þjálfari liðsins. Úrúgvæjar náðu ekki að vinna leik á HM og enduðu í 3. sæti síns riðils, fyrir neðan Grænhöfðaeyjar og Spán. Þeir enduðu fyrir ofan Sádi-Arabíu á markatölu eftir að hafa gert jafntefli við Sáda og Grænhöfðeyinga en tapað 1-0 fyrir Spáni, en tvö stig voru ekki nóg til að komast áfram í 32-liða úrslitin. Þetta voru mikil vonbrigði fyrir Úrúgvæ og var Bielsa miður sín yfir niðurstöðunni. „Ég hef ekki skilið neitt eftir fyrir úrúgvæskan fótbolta,“ sagði hinn sjötugi Bielsa eftir tapið fyrir Spáni, þegar Úrúgvæ var úr leik á HM. „Þjálfari sem hefur verið í þrjú ár og ekki náð úrslitum getur ekki sagst hafa skilað neinu framlagi. Fjórða sætið í undankeppninni er einkis virði og heldur ekki 3. sætið í Suður-Ameríkukeppninni. Það er engin þörf á að skilgreina þessa frammistöðu á HM. Tími minn hér segir ekki neitt,“ sagði Bielsa. Forlán, sem er 47 ára, er aðeins ráðinn til bráðabirgða, eða fram í mars á næsta ári, og verður staðan metin að nýju eftir það. Hann mun einnig halda áfram sem þjálfari U20-landsliðs Úrúgvæ. Forlán er talinn einn besti leikmaður í sögu úrúgvæska landsliðsins en hann vann til að mynda gullskóinn á HM árið 2010, þegar Úrúgvæ komst í undanúrslitin. Þjálfaraferill Forláns er hins vegar mjög takmarkaður og ljóst að hans bíður mikil áskorun við að reisa úrúgvæska liðið úr öskustónni.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti „Guð morning!“ Enski boltinn Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Fótbolti Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Fleiri fréttir Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Siggi Raggi getur gert NSÍ að Færeyjameisturum í dag Infantino segist njóta gríðarlegs stuðnings Sjá meira