Maður dagsins á HM: Tveimur árum of seinn á veitingastaðinn Valur Páll Eiríksson skrifar 11. júlí 2026 10:01 Merino er búinn að skora sigurmark Spánverja í 16- og 8-liða úrslitum á HM. David Ramos/Getty Images Töluverðar efasemdir voru um þátttöku Mikel Merino á heimsmeistaramótinu í fótbolta þegar hann fór í aðgerð vegna fótbrots í janúar. Þjálfari Spánar var aldrei í vafa. Og sá hefur þakkað traustið.
Merino fótbrotnaði í leik við Manchester United í janúar og var frá fram í maí. Honum tókst aðeins að spila 28 mínútur af fótbolta með Arsenal, gegn Crystal Palace í lok maí, áður en kom að heimsmeistaramótinu. Þrátt fyrir að vera inn og út úr liði Arsenal undir stjórn annars Baska, Mikel Arteta, hefur mikilvægi Merino fyrir spænska landsliðið aldrei verið í vafa. Hann byrjaði síðustu sex leiki Spánar í undankeppninni og er mikilvægur hlekkur í liði José de la Fuente sem tók það ekki í mál að Merino sæti heima þrátt fyrir meiðsli og lítið leikform. Hann hefur verið iðinn við kolann í markaskorun með liðinu og tryggði spænskum sigur á Þýskalandi í Stuttgart á EM, með marki undir lok framlengingar. Þar fagnaði Merino með því að snúa upp á hornfánann, rétt eins og faðir hans, Miguel Merino, hafði gert á sama velli í UEFA-bikarnum 33 árum fyrr. Hann skaut liðinu áfram með síðbúnu sigurmarki gegn Portúgal í 16-liða úrslitum og var aftur hetjan í gær, er hann skoraði sigurmark gegn Belgum í 8-liða úrslitum mótsins á SoFi-vellinum í Los Angeles. Merino lék feiknavel fyrir lið Real Sociedad áður en hann reyndi fyrir sér með Skyttunum í Norður-Lundúnum. Sociedad er frá matarborginni San Sebastian og þar velur veitingastaðurinn Txuleta besta leikmann liðsins árlega. Merino hlaut þau verðlaun árið 2020 en vegna heimsfaraldurs og mikilla anna tók hann ekki við verðlaununum, tveimur dýrindis steikum og kvöldverðarstund, fyrr en tveimur árum síðar. Næst mæta Spánverjar liði Frakka í undanúrslitum. Það skyldi þó aldrei vera að Merino verði hetjan, þriðja leikinn í röð.
HM 2026 í fótbolta Spænski boltinn Arsenal FC Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport „Guð morning!“ Enski boltinn Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn Fleiri fréttir Kveðja Kristinn og Kristinn „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjá meira