Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. júlí 2026 22:00 Carlo Ancelotti hjálpar Vinicius Junior á fætur eftir tapið sára á móti Noregi í sextán liða úrslitum heimsmeistaramótsins. Getty/Buda Mendes Tap Brasilíu gegn Noregi í sextán liða úrslitum heimsmeistaramótsins hefur vakið upp sterkar tilfinningar heima fyrir, ekki síst hjá brasilísku fótboltagoðsögninni Romario sem gagnrýnir landsliðsþjálfarann Carlo Ancelotti harðlega.
Fyrrverandi stjarna Barcelona segir að tapið gegn Noregi, þar sem Erling Haaland skoraði bæði mörk leiksins, sé nánast ófyrirgefanlegt. „Leikurinn gegn Noregi var skammarlegur. Hann [Ancelotti] getur ekki verið áfram þjálfari Brasilíu. Ef ég væri í knattspyrnusambandinu hefði ég farið inn í búningsklefann, sagt honum að fara til helvítis og rifið samninginn hans strax,“ sagði Romario á YouTube-rás sinni en Aftonbladet segir frá. 🇧🇷 | Romário’s says he would rip up Ancelotti’s contract and tell him to take it to court. pic.twitter.com/Me3yipbYg9— AllThingsBrazil™ (@SelecaoTalk) July 9, 2026 Þessi sextugi maður telur þar að auki að gagnrýnin sem Ancelotti hefur fengið hafi engan veginn verið nægjanleg. Hefur gert mörg mistök „Hann hefur gert mörg mistök á þessu heimsmeistaramóti og þið í fjölmiðlum segið ekki neitt. Ef hann væri brasilískur þjálfari hefðuð þið fjölmiðlar þegar rifið hann í tætlur. En af því að hann er útlendingur segir enginn neitt,“ sagði Romario. Þrátt fyrir að liðið sé úr leik á HM hefur yfirmaður knattspyrnumála í Brasilíu, Rodrigo Caetano, tekið skýrt fram að Ítalinn fái að halda starfi sínu. Hann er þjálfarinn okkar „Hann er þjálfarinn okkar og mun halda áfram að vera það. Ein helsta ástæðan fyrir því að okkur mistókst á þessu heimsmeistaramóti var að við höfðum ekki stöðuga forystu yfir tíma sem hefði undirbúið landsliðið okkar eins og það á að vera fyrir HM. Við megum ekki gera sömu mistök aftur,“ sagði Caetano eftir tapið gegn Noregi. Ancelotti tók við starfi landsliðsþjálfara brasilíska landsliðsins í maí á síðasta ári. Áður á ferlinum hefur hann stýrt meðal annars Juventus, PSG, Chelsea og Real Madrid. Með síðastnefnda félaginu vann hann auk þess fimm Meistaradeildartitla. Brazil legend Romario calls for Carlo Ancelotti to be SACKED and launches attack on 'damned' manager after shock World Cup exit: 'Tell him to go to hell and rip up his contract' https://t.co/F05RYMJe1x— Daily Mail Sport (@MailSport) July 10, 2026
HM 2026 í fótbolta Brasilía Mest lesið Sjáðu svakalega sleggju Szoboszlai Enski boltinn 16 ára í stuði er Arsenal og Liverpool fóru áfram Enski boltinn Gabríel: Komnir með Fo... nóg af því að tapa Íslenski boltinn Hringdi í Mourinho eftir að hafa hafnað honum Fótbolti Uppgjörið: Fram - Breiðablik 1-3 | Engin bikarþynnka í Blikum Íslenski boltinn Halda úrslitaleikinn aftur 30 árum síðar Fótbolti Haukar og Selfoss leika til úrslita Íslenski boltinn Real kastaði næstum frá sér sigrinum Fótbolti Þrír Íslendingar spiluðu og fóru áfram Fótbolti „Þróunin á Íslandi sorgleg síðan ég var hér síðast“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hringdi í Mourinho eftir að hafa hafnað honum Uppgjörið: Fram - Breiðablik 1-3 | Engin bikarþynnka í Blikum Gabríel: Komnir með Fo... nóg af því að tapa Real kastaði næstum frá sér sigrinum Sjáðu svakalega sleggju Szoboszlai 16 ára í stuði er Arsenal og Liverpool fóru áfram Halda úrslitaleikinn aftur 30 árum síðar Haukar og Selfoss leika til úrslita Þrír Íslendingar spiluðu og fóru áfram Áfram í bikarnum eftir Íslendingaslag Coutinho og Neymar uppfylla gamlan draum Fyrrum leikmaður Tottenham til Ajax Vonarstjarna Man. Utd vill burt frá félaginu Segir skot Dagnýjar á Breiðablik „pínu ósanngjarnt“ Raheem Sterling játar sök „Blikarnir geta sleppt sér lausum“ Fékk símtal frá Þorsteini í þetta sinn en er óviss um landsliðið Sjáðu veislu Leeds og markið sem gerði framherjann brjálaðan „Hann er betri útgáfa af Gerrard“ Sjáðu mörkin: Bomba í slá og inn beint af æfingasvæðinu Fúlir foreldrar fá svarta spjaldið „Þróunin á Íslandi sorgleg síðan ég var hér síðast“ Richarlison sorgmæddur: „Af hverju?“ Milner aftur til Liverpool Coutinho og Neymar sameinaðir á ný „Get ekki beðið eftir leiknum í Frostaskjóli“ Uppgjörið: Víkingur - Keflavík 4-1 | Annað skref í átt að titlinum Leedsarar léku sér að Newcastle Magnaður Malen og Inter kom til baka VAR dómararnir í bann eftir mistök helgarinnar Sjá meira