Tekinn við Portúgal og gæti stýrt Ronaldo á nýjan leik Sindri Sverrisson skrifar 10. júlí 2026 15:31 Jorge Jesus og Cristiano Ronaldo unnu sádiarabíska meistaratitilinn saman. Getty/Yu Chun Hinn 71 árs gamli Jorge Jesus hefur verið ráðinn nýr þjálfari portúgalska landsliðsins eftir vonbrigði liðsins á HM í fótbolta í Norður-Ameríku. Hann gæti þar með endurnýjað kynnin við Cristiano Ronaldo.
Samningur Roberto Martínez rann út um leið og portúgalska liðið féll út af HM, með tapi gegn Spáni í 16-liða úrslitum. Þá þegar var orðið ljóst að Jesus yrði ráðinn í hans stað. Hann skrifaði undir samning sem gildir til næstu fjögurra ára, eða fram yfir EM 2028 og HM 2030. Começa hoje um novo caminho. Bem-vindo à Seleção Nacional, Mister Jorge Jesus. 🇵🇹 #ViemosParaVencer pic.twitter.com/B9Re2bCuAa— Portugal (@selecaoportugal) July 10, 2026 Portúgal verður fyrsta landsliðið sem Jesus stýrir, á löngum ferli, en hann var nú síðast þjálfari Al Nassr og gerði liðið að sádiarabískum meistara á síðustu leiktíð. Hjá Al Nassr stýrði Jesus meðal annars Cristiano Ronaldo og Joao Felix en óvissa ríkir um framtíð Ronaldo með landsliðinu. Hinn 41 árs gamli Ronaldo sagðist vilja skoða sín mál í friði með fjölskyldunni þegar hann var spurður út í framhaldið, eftir tapið gegn Spáni á HM. 29 - Cristiano Ronaldo scored 29 goals in 33 appearances under new Portugal manager Jorge Jesus last season for Al Nassr, playing an average of 87 minutes per game.🇵🇹 Reunited. pic.twitter.com/PuhCkESMfC— OptaJoe (@OptaJoe) July 10, 2026 Jesus hefur unnið 25 titla sem þjálfari, þar á meðal þrjá Portúgalsmeistaratitla með Benfica, brasilíska meistaratitilinn með Flamengo og svo sádiarabíska meistaratitilinn með Al Hilal og Al Nassr. Portúgal hefur ekki komist í undanúrslit á HM síðan árið 2006 en liðið varð Evrópumeistari árið 2016 og vann Þjóðadeildina árin 2019 og 2025. Ronaldo hefur staðfest að hann muni ekki aftur spila á HM en mögulegt er að hann spili þó fleiri landsleiki. Hann á heimsmetið yfir flest mörk fyrir landslið, eða 146 mörk í 233 leikjum.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Kokhraustur eftir neyðarfund Fótbolti Fann fyndna lausn á fljótfæru húðflúri sínu Enski boltinn „Gjörsamlega hömruðum járnið á meðan það var heitt“ Sport „Það er skellur“ Íslenski boltinn Infantino vill skipta við Marokkó á stuðningi við sig og úrslitaleik HM Fótbolti Sagði það „augljósa“ ákvörðun að velja Man City frekar en Arsenal Enski boltinn Brann tapaði en AGF vann liðið sem lenti í umferðteppu Fótbolti Jaissle ráðinn aðalþjálfari Newcastle Enski boltinn Como með mjög strangar miðareglur en hlífa börnunum Fótbolti Konan sem á að rífa upp gengi Manchester United Enski boltinn Fleiri fréttir Fann fyndna lausn á fljótfæru húðflúri sínu Kjartan Kári á leiðinni í Víking Kokhraustur eftir neyðarfund Uppgjörið: FH - KR 1-1 | Ótrúlegt að KR hafi ekki unnið „Það er skellur“ Gamli West Ham-leikmaðurinn allt í öllu á sigri á Arsenal Jaissle ráðinn aðalþjálfari Newcastle Uppgjörið: Keflavík-KA 3-0 | Þrjú mörk á níu mínútum kláraði KA Sagði það „augljósa“ ákvörðun að velja Man City frekar en Arsenal Brann tapaði en AGF vann liðið sem lenti í umferðteppu Tryggðu sigurinn eftir að Emelía kom inn á völlinn Konan sem á að rífa upp gengi Manchester United Como með mjög strangar miðareglur en hlífa börnunum Infantino vill skipta við Marokkó á stuðningi við sig og úrslitaleik HM Lukaku lætur ekki sjá sig Neymar „hagaði sér eins og trúður“ Chelsea tapaði fyrsta leik Mudryks í tvö ár Figo hraunar yfir Infantino Hlín vann systraslaginn Real nálgast samkomulag um Diomandé Salah mættur til Tyrklands Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Sjáðu markið sem lyfti Þór af botninum Diljá með tvennu í öruggum Evrópusigri Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham FH fær danskan framherja Spenntur að mæta KR í fyrsta sinn Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG United ekki lengi þjálfaralaust „Okkar lang slakasti hálfleikur síðan ég tók við“ Sjá meira