Ofurtölvan telur 16,5 prósenta líkur á að fótboltinn komi heim Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 9. júlí 2026 10:30 Englendingar eru komnir í átta liða úrslit á þriðja heimsmeistaramótinu í röð. getty/Chris Brunskill Samkvæmt útreikningum ofurtölvu tölfræðiveitunnar Opta eru Frakkar líklegastir til að standa uppi sem sigurvegarar af þeim liðum sem eru enn með á heimsmeistaramótinu í fótbolta. Átta liða úrslit heimsmeistaramótsins hefjast í kvöld með leik Frakklands og Marokkó í Boston. Annað kvöld eigast Spánn og Belgía við og á laugardaginn mætast Noregur og England annars vegar og heimsmeistarar Argentínu og Sviss hins vegar. Fyrir HM voru Spánverjar líklegastir til að verða heimsmeistarar samkvæmt útreikningum Opta en möguleikar Evrópumeistaranna voru 16,1 prósent. Spænska liðið þykir enn líklegt til afreka samkvæmt ofurtölvunni (21,3 prósent) en ekki það líklegasta. Það er franska liðið en möguleikar þess eru 27,3 prósent. Lionel Messi og félagar í Argentínu eiga 17,3 prósenta möguleika á að verða heimsmeistarar annað mótið í röð samkvæmt ofurtölvunni. Þar skammt á eftir kemur England með 16,5 prósenta möguleika á að koma með fótboltann heim eins og segir í laginu. Ofurtölvan hefur talsvert minni trú á hinum fjórum liðunum í átta liða úrslitunum. Norðmenn eiga 6,6 prósenta líkur á að verða heimsmeistarar en möguleikar Svisslendinga, Marokkóa og Belga eru tæplega fjögur prósent hjá hverju liði. Möguleikar á að verða heimsmeistarar samkvæmt ofurtölvu Opta Frakkland - 27,3% Spánn - 21,3% Argentína - 17,3% England - 16,5% Noregur - 6,6% Sviss - 3,8% Marokkó - 3,7% Belgía - 3,6% Ofurtölvan telur 44,3 prósenta líkur á því að Frakkar komist í úrslitaleikinn 19. júlí. Möguleikar Spánverja og Argentínumanna eru 36,4 prósent og samkvæmt útreikningum ofurtölvunnar eru 35 prósent líkur á að Englendingar leiki til úrslita á HM. HM 2026 í fótbolta Mest lesið Kokhraustur eftir neyðarfund Fótbolti Fann fyndna lausn á fljótfæru húðflúri sínu Enski boltinn „Gjörsamlega hömruðum járnið á meðan það var heitt“ Sport Infantino vill skipta við Marokkó á stuðningi við sig og úrslitaleik HM Fótbolti „Það er skellur“ Íslenski boltinn Jaissle ráðinn aðalþjálfari Newcastle Enski boltinn Uppgjörið: FH - KR 1-1 | Ótrúlegt að KR hafi ekki unnið Íslenski boltinn Brann tapaði en AGF vann liðið sem lenti í umferðteppu Fótbolti Sagði það „augljósa“ ákvörðun að velja Man City frekar en Arsenal Enski boltinn Tryggðu sigurinn eftir að Emelía kom inn á völlinn Fótbolti Fleiri fréttir Fann fyndna lausn á fljótfæru húðflúri sínu Kjartan Kári á leiðinni í Víking Kokhraustur eftir neyðarfund Uppgjörið: FH - KR 1-1 | Ótrúlegt að KR hafi ekki unnið „Það er skellur“ Gamli West Ham-leikmaðurinn allt í öllu á sigri á Arsenal Jaissle ráðinn aðalþjálfari Newcastle Uppgjörið: Keflavík-KA 3-0 | Þrjú mörk á níu mínútum kláraði KA Sagði það „augljósa“ ákvörðun að velja Man City frekar en Arsenal Brann tapaði en AGF vann liðið sem lenti í umferðteppu Tryggðu sigurinn eftir að Emelía kom inn á völlinn Konan sem á að rífa upp gengi Manchester United Como með mjög strangar miðareglur en hlífa börnunum Infantino vill skipta við Marokkó á stuðningi við sig og úrslitaleik HM Lukaku lætur ekki sjá sig Neymar „hagaði sér eins og trúður“ Chelsea tapaði fyrsta leik Mudryks í tvö ár Figo hraunar yfir Infantino Hlín vann systraslaginn Real nálgast samkomulag um Diomandé Salah mættur til Tyrklands Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Sjáðu markið sem lyfti Þór af botninum Diljá með tvennu í öruggum Evrópusigri Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham FH fær danskan framherja Spenntur að mæta KR í fyrsta sinn Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG United ekki lengi þjálfaralaust „Okkar lang slakasti hálfleikur síðan ég tók við“ Sjá meira
Átta liða úrslit heimsmeistaramótsins hefjast í kvöld með leik Frakklands og Marokkó í Boston. Annað kvöld eigast Spánn og Belgía við og á laugardaginn mætast Noregur og England annars vegar og heimsmeistarar Argentínu og Sviss hins vegar. Fyrir HM voru Spánverjar líklegastir til að verða heimsmeistarar samkvæmt útreikningum Opta en möguleikar Evrópumeistaranna voru 16,1 prósent. Spænska liðið þykir enn líklegt til afreka samkvæmt ofurtölvunni (21,3 prósent) en ekki það líklegasta. Það er franska liðið en möguleikar þess eru 27,3 prósent. Lionel Messi og félagar í Argentínu eiga 17,3 prósenta möguleika á að verða heimsmeistarar annað mótið í röð samkvæmt ofurtölvunni. Þar skammt á eftir kemur England með 16,5 prósenta möguleika á að koma með fótboltann heim eins og segir í laginu. Ofurtölvan hefur talsvert minni trú á hinum fjórum liðunum í átta liða úrslitunum. Norðmenn eiga 6,6 prósenta líkur á að verða heimsmeistarar en möguleikar Svisslendinga, Marokkóa og Belga eru tæplega fjögur prósent hjá hverju liði. Möguleikar á að verða heimsmeistarar samkvæmt ofurtölvu Opta Frakkland - 27,3% Spánn - 21,3% Argentína - 17,3% England - 16,5% Noregur - 6,6% Sviss - 3,8% Marokkó - 3,7% Belgía - 3,6% Ofurtölvan telur 44,3 prósenta líkur á því að Frakkar komist í úrslitaleikinn 19. júlí. Möguleikar Spánverja og Argentínumanna eru 36,4 prósent og samkvæmt útreikningum ofurtölvunnar eru 35 prósent líkur á að Englendingar leiki til úrslita á HM.
Frakkland - 27,3% Spánn - 21,3% Argentína - 17,3% England - 16,5% Noregur - 6,6% Sviss - 3,8% Marokkó - 3,7% Belgía - 3,6%
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Kokhraustur eftir neyðarfund Fótbolti Fann fyndna lausn á fljótfæru húðflúri sínu Enski boltinn „Gjörsamlega hömruðum járnið á meðan það var heitt“ Sport Infantino vill skipta við Marokkó á stuðningi við sig og úrslitaleik HM Fótbolti „Það er skellur“ Íslenski boltinn Jaissle ráðinn aðalþjálfari Newcastle Enski boltinn Uppgjörið: FH - KR 1-1 | Ótrúlegt að KR hafi ekki unnið Íslenski boltinn Brann tapaði en AGF vann liðið sem lenti í umferðteppu Fótbolti Sagði það „augljósa“ ákvörðun að velja Man City frekar en Arsenal Enski boltinn Tryggðu sigurinn eftir að Emelía kom inn á völlinn Fótbolti Fleiri fréttir Fann fyndna lausn á fljótfæru húðflúri sínu Kjartan Kári á leiðinni í Víking Kokhraustur eftir neyðarfund Uppgjörið: FH - KR 1-1 | Ótrúlegt að KR hafi ekki unnið „Það er skellur“ Gamli West Ham-leikmaðurinn allt í öllu á sigri á Arsenal Jaissle ráðinn aðalþjálfari Newcastle Uppgjörið: Keflavík-KA 3-0 | Þrjú mörk á níu mínútum kláraði KA Sagði það „augljósa“ ákvörðun að velja Man City frekar en Arsenal Brann tapaði en AGF vann liðið sem lenti í umferðteppu Tryggðu sigurinn eftir að Emelía kom inn á völlinn Konan sem á að rífa upp gengi Manchester United Como með mjög strangar miðareglur en hlífa börnunum Infantino vill skipta við Marokkó á stuðningi við sig og úrslitaleik HM Lukaku lætur ekki sjá sig Neymar „hagaði sér eins og trúður“ Chelsea tapaði fyrsta leik Mudryks í tvö ár Figo hraunar yfir Infantino Hlín vann systraslaginn Real nálgast samkomulag um Diomandé Salah mættur til Tyrklands Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Sjáðu markið sem lyfti Þór af botninum Diljá með tvennu í öruggum Evrópusigri Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham FH fær danskan framherja Spenntur að mæta KR í fyrsta sinn Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG United ekki lengi þjálfaralaust „Okkar lang slakasti hálfleikur síðan ég tók við“ Sjá meira