Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. júlí 2026 18:31 Bruno Guimaraes í leik með Newcastle United á móti Arsenal á síðustu leiktíð. Getty/Lee Parker Bruno Guimaraes hefur tilkynnt Newcastle United ósk sína um að yfirgefa St James’ Park og ganga til liðs við Arsenal fyrir næstu leiktíð í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Þessu slær upp í kvöld hinni virti blaðamaður David Ornstein á The Athletic.
Ensku meistararnir ætla sér að ná í þennan 28 ára gamla leikmann og hafa gefið til kynna vilja til að greiða allt að sextíu milljónir punda fyrir miðjumanninn. Sami miðill greindi frá því í júní að Arsenal hefði fengið munnlegu tilboði sínu hafnað sem hljóðaði upp á minna en 60 milljónir punda. Newcastle fullyrti á þeim tíma að þeir myndu ekki íhuga tilboð í Guimaraes. Engin samskipti hafa átt sér stað milli félaganna hingað til og liðið frá norðausturhlutanum heldur þeirri afstöðu sinni enn. 🚨 EXCL: Bruno Guimaraes informs Newcastle United of wish to leave & join Arsenal. #AFC stepping up pursuit - ready to offer deal worth up to £60m at present but no club-to-club contact yet + #NUFC stance still not entertaining bids for 28yo @TheAthleticFC https://t.co/6W3cpcqKKh— David Ornstein (@David_Ornstein) July 8, 2026 Guimaraes á tvö ár eftir af samningi sínum en hann skrifaði undir fimm ára framlengingu í október 2023. Sá samningur innihélt tímabundið hundrað milljóna punda riftunarákvæði en það rann út í júní 2024 án þess að hafa verið nýtt. Newcastle hefur þegar selt Anthony Gordon til Barcelona í sumar fyrir 69,3 milljónir punda og Sandro Tonali hefur gengið til liðs við Tottenham Hotspur í samningi sem gæti numið allt að 100 milljónum punda. Guimaraes var í brasilíska landsliðshópi Carlo Ancelotti á heimsmeistaramótinu í sumar, þar sem hann byrjaði alla leiki áður en liðið féll úr leik fyrir Noregi í 16-liða úrslitum. Bruno gaf fjórar stoðsendingar á mótinu. Miðjumaðurinn hefur fest sig í sessi sem lykilmaður hjá Newcastle síðan hann kom frá Lyon í janúar 2022. Hann hefur spilað 153 leiki í ensku úrvalsdeildinni, skorað 30 mörk og gefið 26 stoðsendingar.
Enski boltinn Arsenal FC Newcastle United Mest lesið Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Handbolti Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Fótbolti Dönsk landsliðsstjarna dæmd Fótbolti Hundrað metra met Bolt „fallið“ Sport Golfáhrifavaldar í klandri vegna umdeildrar auglýsingar Golf Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Enski boltinn Heiðursmannasamkomulag var svikið: „Kom okkur á óvart“ Handbolti Raheem Sterling ákærður Enski boltinn Orri Steinn kom inn á en Mbappé skoraði þrennu Fótbolti Uppgjörið: Apollon - FH 0-2 | Flottur sigur í sögulegum leik hjá Fimleikafélaginu Fótbolti Fleiri fréttir Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Cody Gakpo orðaður við Manchester City Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Watkins virðist vilja fara frá Aston Villa Newcastle að fá miðjumann Man. City Efast um Iraola: „Hvar eru stóru strákarnir“ Reknu vinirnir mætast í London Myndi ekki sofa á nóttunni: „Enn þá bara sama gamla Tottenham“ Liverpool og City muni ekki berjast um titilinn Sjáðu mörkin: Dramatík hjá Liverpool og City en hrun hjá Aston Villa „Verið að drekkja þeim í áhyggjum að þetta verði bara aftur sama sagan“ Emery bað Watkins um að útskýra fjarveru sína: „Það er spurning fyrir hann“ „Ástæðan fyrir því að ég elska fótbolta“ Níu mínútur komnar fram yfir venjulegan leiktíma þegar Szoboszlai jafnaði Liðsfélagi Hákonar á leiðinni til City Algjört hrun í fyrsta leik hjá Aston Villa Endurkomusigur hjá City í fyrsta leik Watkins utan hóps en Emery vill ekki tjá sig Sjá meira