Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Sindri Sverrisson skrifar 8. júlí 2026 16:47 Andrey Santos er á förum frá Chelsea til Manchester United. Getty Manchester United hefur samið við Chelsea um kaup á brasilíska miðjumanninum Andrey Santos fyrir 50 milljónir punda, samkvæmt frétt The Athletic í dag. Því eru tveir brasilískir miðjumenn á leið til félagsins en einn nýfarinn.
Santos, sem er 22 ára gamall, hefur þegar samið við United um kaup og kjör og hefur nú fengið leyfi frá Chelsea til þess að klára vistaskiptin. Hann hefur undanfarið verið í sumarfríi eftir að hafa ekki verið valinn í HM-hóp Brasilíu. United greiðir 48 milljónir punda og svo 2 milljónir punda í aukagreiðslur að uppfylltum auðveldum skilyrðum, samkvæmt frétt The Athletic. Þá fær Chelsea 10% af upphæðinni sem hlýst af næstu sölu leikmannsins. Manchester United have reached an agreement with Chelsea to sign Andrey Santos.United will pay a fee worth £48million plus £2m in easily achievable bonuses, with Chelsea set to retain a 10 per cent sell-on clause for the midfielder.More from @David_Ornstein, @MarioCortegana… pic.twitter.com/y0SYfh4IGI— The Athletic | Football (@TheAthleticFC) July 8, 2026 Santos, sem spilar á miðri miðju eða sem varnarsinnaður miðjumaður, var samningsbundinn Chelsea til ársins 2030 en í ljósi þess í hve stóru hlutverki Moises Caicedo er hjá félaginu, og nú samningsbundinn til ársins 2033, vildi Santos söðla um. Hann kom til Chelsea frá Vasco da Gama í heimalandinu í janúar 2023 en hefur þó aðeins leikið eina leiktíð fyrir Chelsea, alls 43 leiki í vetur í öllum keppnum. Hann var lánaður til Nottingham Forest fyrri hluta tímabilsins 2023-24 en spilaði lítið, og svo til Strasbourg í Frakklandi þar sem hann var í stóru hlutverki og skoraði til að mynda tíu mörk í frönsku 1. deildinni tímabilið 2024-25. United hefur einnig fest kaup á öðrum brasilískum miðjumanni, Ederson, frá Atalanta og á hann aðeins eftir að gangast undir læknisskoðun. Kaupverðið nemur 35 milljónum punda með möguleika á 4 milljóna punda aukagreiðslu. Landi þeirra Santos og Ederson, Casemiro, yfirgaf United eftir síðasta tímabil og þá er ljóst að Úrúgvæinn Manuel Ugarte verður lengi frá keppni vegna hnémeiðsla.
Enski boltinn Manchester United Chelsea FC Mest lesið Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Fleiri fréttir Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ „Þetta snýst ekki um mig“ „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjá meira