Evrópuþingmenn kalla eftir rannsókn á Infantino Valur Páll Eiríksson skrifar 8. júlí 2026 10:30 Spjót beinast að Infantino þessi dægrin eftir að banni framherja Bandaríkjanna var aflétt með fordæmalausum hætti. Carl Recine/Getty Images Tugir þingmanna á Evrópuþinginu kalla eftir rannsókn á Gianni Infantino, forseta FIFA, og tengslum hans við Donald Trump Bandaríkjaforseta. Til skoðunar er hvort Infantino hafi haft áhrif á þá fordæmalausu ákvörðun FIFA að aflétta leikbanni Folarin Balogun á miðju heimsmeistaramóti.
Folarin Balogun fór í eins leiks bann vegna rauðs spjalds sem hann hlaut í leik Bandaríkjanna við Bosníu í 32-liða úrslitum mótsins. Hann átti því ekki að spila leikinn við Belgíu í 16-liða úrslitum mótsins. Það breyttist í vikunni og Donald Trump Bandaríkjaforseti greindi stoltur frá því að hafa hringt í Gianni Infantino, forseta FIFA, vegna málsins og fengið hann til að fella bannið úr gildi. Infantino birti í kjölfarið yfirlýsingu þar sem hann ítrekaði sjálfstæði og hlutleysi dómstóla FIFA. Hann sem forseti hafi ekkert haft með niðurstöðu dómstóla sambandsins að gera. Balogun spilaði leikinn en Belgía vann þar 4-1 sigur og er komið áfram í 8-liða úrslit. Evrópuþingmennirnir Barry Andrews, Lara Wolters og Niels Fuglsang greindu frá því í sameiginlegri yfirlýsingu að ákvörðun FIFA um að „breyta reglunni um bönn tengd rauðum spjöldum á miðju móti sé skammarleg og rangfærsla réttlætis.“ „Enn og aftur höfum við séð Infantino og FIFA gangast við kröfum stjórnar Trumps,“ sagði í yfirlýsingunni. Þingmennirnir hafa beðið knattspyrnusambönd ESB-ríkja að setja pressu á siðanefnd FIFA til að rannsaka Infantino og hvort þrýstingur frá stjórn Trumps hafi átt þátt í afléttingu bannsins. Einnig eigi að rannsaka „önnur möguleg brot á pólitísku hlutleysi“ líkt og að Infantino hafi afhent Trump friðarverðlaun FIFA. Bréf verði sent til allra knattspyrnusambanda ESB-ríkjanna og 35 kollegar þingmannana þriggja hafi þegar undirritað bréfið. „Fegurð íþrótta er sí að hún byggist á hlutlægum og gagnsæjum reglum. Þegar Infantino leyfir pólitískum þrýstingi að ákvarða herjir fá að spila, þá hverfur þessi sanngirni út um gluggann,“ segir í yfirlýsingu þingmanna Evrópuþingsins.
FIFA Evrópusambandið Belgía HM 2026 í fótbolta Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport „Guð morning!“ Enski boltinn Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn Fleiri fréttir Kveðja Kristinn og Kristinn „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjá meira