„Viljum ekki drepa þig en nú er nóg komið“ Sindri Sverrisson skrifar 7. júlí 2026 08:30 Cristiano Ronaldo felldi tár eftir sinn síðasta leik á HM í gærkvöld. Hann ætlar að vega og meta hvort þetta hafi jafnframt verið hans síðasti landsleikur. Getty/Omar Vega Cristiano Ronaldo hefur fengið að heyra það í fjölmiðlum heima í Portúgal og um heim allan, eftir að Portúgalar féllu úr leik á HM í fótbolta í gærkvöld með 1-0 tapi gegn Spáni í 16-liða úrslitum. „
Hann bara gaufaðist eitthvað um völlinn og var ekki með í neinu. Var alltaf í burtu frá boltanum,“ sagði Óskar Hrafn Þorvaldsson, sérfræðingur RÚV, um Ronaldo eftir leikinn í gær. Ronaldo lék allan leikinn en á meðan sat Goncalo Ramos á varamannabekk Portúgals, þrátt fyrir að hafa skorað sigurmarkið gegn Króatíu í 32-liða úrslitum. „Hversu fúlt er að vera Goncalo Ramos? Hversu pirrandi er að horfa upp á Roberto Martinez enn eina ferðina guggna á því að taka manninn út af? Og borga bara fyrir það með því að vera búinn í 16-liða úrslitum,“ sagði Óskar Hrafn. Chris Sutton, sérfræðingur BBC, talaði með líkum hætti um hinn 41 árs gamla Ronaldo, sem þó afrekaði það að skora þrjú mörk á HM og er sá eini sem skorað hefur á sex heimsmeistaramótum: „Hann er að vappa um völlinn eins og afi, þess vegna eru Portúgalar úr leik. Cristiano Ronaldo gerir ekki neitt. Hann gerði ekki neitt. Hvað er Roberto Martinez að gera? Hvernig er hægt að dekra svona mikið við einn leikmann? Portúgal er úr leik út af Roberto Martinez,“ sagði Sutton. Í skoðanapistli íþróttamiðilsins vinsæla A Bola í Portúgal fékk Ronaldo svipaða meðferð. „Við viljum ekki drepa þig en núna er nóg komið,“ stóð þar í fyrirsögn, með tilvísun í orð Ronaldos sjálfs um að fjölmiðlamenn hefðu „reynt að drepa hann í 23 ár“. Í pistlinum sagði jafnframt að sú ákvörðun að nýta ekki krafta Ramos í leiknum væri bara til að fullkomna þá hryllingssýningu sem boðið hefði verið upp á undir stjórn Martinez sem strax eftir leik tilkynnti að hann væri hættur með portúgalska landsliðið. Jorge Jesus, sem var þjálfari Ronaldos hjá Al Nassr en er nú á lausu, er sagður taka við portúgalska landsliðinu. Ronaldo felldi sjálfur tár eftir tapið í gær, eftir sinn síðasta HM-leik. Aðspurður hvort hann hefði spilað sinn síðasta landsleik sagðist hann ætla að ræða við fjölskyldu sína og taka ákvörðunina að vel yfirlögðu ráði. Ronaldo varð Evrópumeistari með Portúgal árið 2016 og hefur samtals skorað 976 mörk fyrir félags- og landslið á ferli sínum.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport „Guð morning!“ Enski boltinn Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn Fleiri fréttir Kveðja Kristinn og Kristinn „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjá meira