Neytendur

Kreditkortavandi hjá Lands­bankanum leystur

Jón Þór Stefánsson skrifar
Unnið er að lagfæringu.
Unnið er að lagfæringu. Vísir/Anton Brink

Kreditkortagreiðslur hjá Landsbankanum sem voru skuldfærðar 2. júlí hafa ekki enn skilað sér vegna bilunar. Það hefur áhrif á ráðstöfun kortanna. Unnið er að því að finna lausn á vandamálinu.

Uppfært 20:58: Vandinn hefur nú verið leystur.

„Mínúturnar líða mjög hægt hjá okkur núna,“ segir Kristín Gunnarsdóttir, forstöðumaður Upplýsingamiðlunnar hjá Landsbankanum, í samtali við fréttastofu. Bankinn vinni nú hörðum höndum ásamt Rapyd að því að leysa vandann, og vonast til að það gerist sem allra fyrst.

Hún telur að bilunin nái til um fimmtíu þúsund kreditkorta, en svokölluð premium-kort eru undanskilin þessum vandræðum. Þá bendir hún á að hægt sé að nota debetkort áhyggjulaust.

„Það sem í rauninni gerist er að margir eru með reikningana sína í beingreiðslu sem borgast yfirleitt annan dag hvers mánaðar. Sú keyrsla af einhverjum ástæðum kláraðist ekki almennilega. Þess vegna eru kortin að fá eins og greiðslunni hafi verið hafnað, eins og þú sért með ógreiddan reikning, sem þú ert sannarlega ekki með.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×