Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Sindri Sverrisson skrifar 25. júní 2026 22:48 Elliot Anderson er upptekinn með enska landsliðinu á HM en framtíð hans er að skýrast. Getty/Sathire Kelpa Manchester City hefur náð samkomulagi við Nottingham Forest um kaup á enska landsliðsmiðjumanninum Elliot Anderson.
City-menn hafa sótt það stíft að fá Anderson í sínar raðir og í kvöld greindi The Athletic frá því að nýtt og betrumbætt tilboð City hefði verið samþykkt. Kaupverðið er 116 milljónir punda sem samsvarar 19,4 milljörðum króna. Anderson, sem er 23 ára gamall, er upptekinn með enska landsliðinu á HM í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada, en hefur fengið leyfi til að gangast undir læknisskoðun í New York á morgun áður en gengið verður frá öðrum lausum endum svo hægt verði að kynna hann sem nýjasta leikmann City. The Athletic segir að Forest hafi vonast til að kaupverðið yrði hærra en þær 125 milljónir punda sem Liverpool greiddi Newcastle til að gera Alexander Isak að dýrasta leikmanni Bretlandseyja í fyrrasumar. City hafi fyrst gert Forest munnlegt tilboð 10. júní upp á 106 milljónir punda, sem myndi geta hækkað upp í 120 milljónir punda, en nú sé upphæðin 116 milljónir punda og engar klásúlur þurfi að uppfylla til að sú upphæð verði að fullu greidd. Anderson kom til Forest frá Newcastle og spilaði 92 leiki fyrir liðið, þar á meðal hvern einasta deildarleik á síðustu leiktíð þegar hann skoraði fjögur mörk og átti fjórar stoðsendingar. Anderson hefur verið í byrjunarliði Englands í báðum leikjunum á HM til þessa, gegn Króatíu og Gana, en liðið mætir svo Panama á laugardaginn. The Athletic segir að Forest sé með Lucas Bergvall hjá Tottenham í sigtinum sem arftaka Anderson á miðjunni.
Enski boltinn HM 2026 í fótbolta Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Fleiri fréttir Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ „Þetta snýst ekki um mig“ „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjá meira