Quarashi hyggst „Do it again“ Freyja Þórisdóttir skrifar 24. júní 2026 15:56 Sveitin Quarashi hefur nú gefið frá sér lagið „Do it again“ en í september heldur hún svo þrjátíu ára afmælistónleika í Laugardalshöll. Facebook/Quarashi Hljómsveitin Quarashi hefur sent frá sér nýtt lag en í fyrra, árið 2025, tróð sveitin upp á Lopapeysunni á Akranesi eftir ríflega tíu ára hlé frá sviðsljósinu. Hún lagði upp laupana árið 2005 eftir mikla alþjóðlega velgengni en meðal þeirra meðlima sem hafa tjáð sig um álagið sem fylgdi eru Sölvi Blöndal, einn forsprakki Quarashi.
Quarashi er ein áhrifamesta rapp-rokkhljómsveit Íslands og var stofnuð í Reykjavík árið 1996. Sveitin vakti fyrst athygli hérlendis með blöndu af hip-hoppi, rokki og fönki en vakti síðan alþjóðlega athygli með plötunni Jinx árið 2002. Þar naut lagið Stick 'Em Up mikilla vinsælda, fékk spilun á MTV og varð eitt þekktasta lag sveitarinnar. Sveitin gaf út fimm plötur á árunum 1997 til 2004: Quarashi (1997), Xeneizes (1999), Kristnihald undir jökli (2001), Jinx (2002) og Guerilla Disco (2004), en sú síðastnefnda seldist í 50.000 eintökum í Japan einu saman. Lagði upp laupana árið 2005 Útgáfa nýs lags markar því tímamót fyrir sveitina, enda er um að ræða fyrsta nýja efnið í nokkurn tíma og enn eitt merki þess að Quarashi sé aftur orðið virkt afl í íslensku tónlistarlífi en þegar þeir gáfu út lagið Chicago árið 2016 sögðu meðlimir að ný plata væri í vinnslu. Hins vegar hefur hún enn ekki litið dagsins ljós og því er spennandi að sjá hvort þetta nýja lag sé til marks um að plata sé væntanleg. Fáir hefðu þó spáð því fyrir tveimur áratugum að Quarashi ætti eftir að snúa aftur. Sveitin sló í gegn á alþjóðavísu í byrjun aldarinnar með plötunni Jinx, fór í umfangsmiklar tónleikaferðir erlendis og hitaði meðal annars upp fyrir stór nöfn á borð við Eminem og The Prodigy. Álagið tók þó sinn toll og árið 2005 lagði sveitin upp laupana. Sölvi Blöndal, stofnandi og pródúsent sveitarinnar, hefur síðar lýst því að hann hafi verið fullkomlega búinn á því þegar Quarashi hætti. Í hlaðvarpsviðtali árið 2022 sagðist hann hafa ákveðið að snúa baki við tónlistarbransanum og hefði ekki ætlað að snerta trommukjuða aftur. Hann sneri sér í kjölfarið að hagfræðinámi og varð síðar áberandi í íslensku viðskiptalífi. Stórafmælistónleikar í september Nú virðist sveitin hins vegar ekki aðeins ætla að rifja upp gamla sigra heldur kemur útgáfa nýs lags frá Quarashi á sama tíma og sveitin undirbýr stærstu tónleika sína í mörg ár. Quarashi fagnar 30 ára afmæli sínu með tónleikum í Laugardalshöll 19. september þar sem stefnt er að því að flytja helstu lög ferilsins ásamt því að fá til liðs við sig gesti sem komu að sögu sveitarinnar á ýmsum tímum. Þeir sem eru skráðir fyrir nýja laginu eru Sölvi Blöndal, Egill Thorarensen, Höskuldur Ólafsson, Gísli Galdur, Hrannar Ingimarsson, Arnar Guðjónsson, Gaukur Úlfarsson og Glenn Schick.
Tímamót Tónleikar á Íslandi Mest lesið Vill skapa staðinn sem sonur hennar þurfti en fann aldrei Lífið Sló pabba út með að kasta sér yfir línuna Lífið „Ég er svolítið svífandi á bleiku skýi“ Lífið Klukkutíma bröns getur kostað marga daga í rúminu Lífið Myndaveisla: Stjörnufans fyrir norðan á Einni með öllu Lífið IceGuys boða sína síðustu tónleika: Sonur Arons Can gerði allt vitlaust Tónlist Innipúki er ekki það sama og fýlupúki Lífið Krakkatía vikunnar: Hungurleikar, biskup og geirfuglinn Lífið „Við getum ekki kvartað undan veðrinu“ Lífið Big Pussy er látinn Lífið Fleiri fréttir IceGuys boða sína síðustu tónleika: Sonur Arons Can gerði allt vitlaust Guðjón Þorgils flytur lag Hinsegin daga Skímó á skikkanlegum tíma fyrir ömmur og afa Patrik hættur að gigga: „Mér líður eins og apa í búri“ Daniil gefur út lag með Kodak Black: „Trúi þessu ekki ennþá“ Grafalvarlegt nýtt efni: „Jafn tilgangslausar og að selja flugelda inni í helli“ Von á tíu nýjum lögum tíu árum eftir andlátið „Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ „Þýðir í raun bara endalok fyrir íslenska útgefna tónlist“ Sagði Viktoríu Beckham að „fokka sér“ Litla systir Gretu Thunberg ætlar að verða súperstjarna Innipúkunum fjölgar enn Bonnie Tyler er látin Skvísur og töffarar fögnuðu með Elvari Hvarf vegna athyglisbrests á hæsta stigi Landslið íslenskra söngvara syngur afmælislag Bylgjunnar Söngvari YMCA látinn Sjá meira