Erfitt fyrir leikmenn að bíða eftir veðri Andri Broddason skrifar 23. júní 2026 12:32 Mikil úrkoma gerði rétt fyrir hálfleik Frakklands og Íraks í gær og tafir voru gerðar á leiknum. Kevin C. Cox/Getty Images Óvenjulangt hlé þurfti að gera í gær þegar Frakkland og Írak áttust við á heimsmeistaramótinu í fótbolta. Mikið óveður gerði rétt áður en flautað var til hálfleiks og gátu leikmenn ekki hafið leik fyrr en tveimur tímum síðar.
Frakkland og Írak mættust í öðrum leik liðanna á heimsmeistaramótinu í fótbolta. Ekki var víst hvort að leikurinn myndi fara fram á réttum tíma en fyrir leik opnaði svæði fyrir áhorfendur ekki á settum tíma. Það rættist þó úr veðrinu fyrir leik og leikurinn fór fram á réttum tíma með fullar stúkur af áhorfendum. Rétt fyrir hálfleik byrjaði að rigna gífurlega mikið og stuttu eftir að blásið var til hálfleiks voru áhorfendur beðnir um að koma sér í öruggt skjól. Reglur um íþróttaviðburði í Bandaríkjunum eru að ef eldingu slær niður í þrettán kílómetra radíus frá leikvanginum þarf hann að vera rýmdur í hálftíma í það minnsta. Leikmenn og áhorfendur þurftu að bíða í tvær klukkustundir til að geta hafið seinni hálfleikinn. Þetta getur haft mikil áhrif á leikmenn sem þurfa að halda sér í leikformi allan tímann. Starfsmenn vallarins voru í óða önn að hreinsa vatnið á vellinum.Sathire Kelpa/Eurasia Sport Images/Getty Images Fyrirliði Frakklands, Kylian Mbappe, sagði að þetta kvöld hefði verið langt og erfitt. Að halda einbeitingu inni í búningsklefa í svona langan tíma er erfitt fyrir leikmennina og andlega lýjandi. Þegar liðin fengu loksins að fara á völlinn að hita upp eftir næstum tveggja klukkustunda bið tóku við fleiri tafir. Þá var svo mikið vatn eftir á vellinum að starfsmenn vallarins þurftu að ýta vatninu frá þar sem pollarnir voru stærstir. Graham Arnold, þjálfari Írak, sagði við leikmenn sína að það mikilvægasta eftir hlé væri að halda einbeitingunni. Þau skilaboð skiluðu sér greinilega ekki nógu vel þar sem Mbappe skoraði snemma í seinni hálfleik eftir mistök frá markmannsspyrnu Íraks. Arnold vill meina að tafirnar hafi átt hlut í mistökunum.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport „Guð morning!“ Enski boltinn Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristinn og Kristinn „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Sjá meira