Fólki sagt að halda sig inni vegna óþekkts dróna við Helsinki Kjartan Kjartansson skrifar 15. maí 2026 09:07 Finnskar herþyrlur á Vantaa-flugvelli í Helsinki. Myndin er úr safni. Vísir/EPA Íbúum í Helsinki, höfuðborg Finnlands, var ráðlagt að halda kyrru fyrir innandyra og flugumferð var stöðvuð tímabundið vegna óþekktra dróna í nótt. Yfirvöld segja mögulega hættu liðna hjá.
Töluverður viðbúnaður var í sunnanverðu Finnlandi vegna dróna sem taldir voru hafa ráfað inn í finnska lofthelgi snemma í morgun. Orrustuþotur sáust á flugi yfir Uusimaa-héraði. Um 1,8 milljón íbúum héraðsins, þar á meðal höfuðborgarinnar, var ráðlagt að halda sig inni. Flugumferð var takmörkuð frá klukkan fjögur í nótt að staðartíma og var bæði flugvélum og skipum beint frá höfuðborginni, að sögn finnska ríkisútvarpsins. Finnski herinn jók eftirlit og setti orrustuþotu- og þyrluáhafnir í viðbragðsstöðu. Landhelgisgæslan jók einnig viðbúnað sinn. Alexander Stubb, forseti Finnlands, fullyrti að bein hernaðarógn steðjaði ekki að landinu. Mari Rantanten, innanríkisráðherra, sagði að fólki væri óhætt að fara til skóla og vinnu í morgun. Ekki er ljóst hvaðan möguleg flygildi komu. Nokkur dæmi hafa verið um að úkraínskir og rússneskir drónar hafi villst inn í lofthelgi nágrannaríkja á undanförnum mánuðum.
Finnland Flug Öryggis- og varnarmál Mest lesið Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Segir af sér vegna lestarslysa Erlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Erlent „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Fleiri fréttir Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins Sjá meira