Southampton einum sigri frá ensku úrvalsdeildinni Valur Páll Eiríksson skrifar 12. maí 2026 21:44 Norður-Írinn Shea Charles (t.v.) skaut Southampton á Wembley. Robin Jones/Getty Images Southampton mun mæta Hull City í úrslitaleik um sæti í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta á næstu leiktíð. Liðið vann 2-1 heimasigur á Middlesbrough til að koma sér á Wembley.
Allt var jafnt fyrir leik kvöldsins eftir markalaust jafntefli liðanna á Riverside í Middlesbrough í fyrri leiknum. Það tók gestina þó aðeins fimm mínútur að brjóta ísinn í kvöld þar sem Ástralinn Riley McGree kom boltanum í netið úr teignum eftir fyrirgjöf. Staðan var markalaus fram í uppbótartíma fyrri hálfleiks. Skoski framherjinn Ross Stewart skallaði boltann þá í netið af stuttu færi í kjölfar aukaspyrnu. Staðan var 1-1 í hálfleik. Við tók spennuþrunginn síðari hálfleikur en heimamenn voru töluvert sterkari aðilinn. Hvorugu liðinu tókst að skora, 1-1 staðan eftir 90 mínútur og framlengja þurfti leikinn. Ekki var spennan minni í framlengingunni en komið var fram á 116. mínútu þegar Southampton tókst loks að breyta yfirburðum liðsins í mark. Shea Charles átti þá fyrirgjöf frá hægri sem fór í gegnum allan pakkann og endaði í fjærhorninu. Heppnisstimpill yfir markinu sem kom alls ekki úr marktilraun en markið taldi ekkert minna fyrir því. Middlesbrough pressaði stíft undir lok leiks en tókst ekki að finna jöfnunarmark. Southampton vann leikinn og einvígið 2-1 og fer því á Wembley þann 23. maí. Liðið mætir Hull City í hreinum úrslitaleik um sæti í ensku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð.
Enski boltinn Mest lesið Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Enski boltinn Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Fótbolti Elías og félagar flugu áfram Fótbolti Reynir Þór með fína frammistöðu í tapi Handbolti Palacios til Ipswich Enski boltinn Gísli tekur við og stýrir Víkingi í næstefstu deild Handbolti Dregið í Meistaradeild: Hákon mætir Arsenal og Bayern Fótbolti Tólf tíma þrekraun Elísu með þeim bestu í heimi: „Hentar mér mjög vel“ Sport Chelsea að ná í Emiliano Martínez Enski boltinn Rodri kom inn af bekknum í sigurleik Fótbolti Fleiri fréttir Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Cody Gakpo orðaður við Manchester City Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Watkins virðist vilja fara frá Aston Villa Newcastle að fá miðjumann Man. City Efast um Iraola: „Hvar eru stóru strákarnir“ Reknu vinirnir mætast í London Myndi ekki sofa á nóttunni: „Enn þá bara sama gamla Tottenham“ Liverpool og City muni ekki berjast um titilinn Sjá meira