„Eigum að díla betur við svona stöður“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 3. maí 2026 20:58 Jóhannes Karl Guðjónsson (t.h.) tekur í höndina á kollega sínum, Rúnari Kristinssyni. Vísir/Diego „Þetta er náttúrulega gríðarlegt svekkelsi því við lögðum á okkur ansi mikla vinnu í fyrri hálfleik,“ sagði Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari FH, eftir tap liðsins gegn Fram í kvöld.
FH-ingar voru með 3-1 forystu í hálfleik, en glutruðu henni niður og máttu að lokum þola 3-4 tap. „Við vorum alveg staðráðnir í að koma út í seinni hálfleikinn og mæta Frömurunum aftur. Við vissum alveg að þeir myndu fara að taka aðeins meiri sénsa og dæla fleiri löngum boltum á okkur. Við náðum bara því miður ekki að leysa það nógu vel eins og sást og þeir gengu á lagið. Við vorum alveg í mikið meira en nógu góðri stöðu til að díla við hættuna því þeir voru nokkuð fyrirsjáanlegir með það hvað þeir myndu gera. Langir boltar fram og fyrirgjafir utan af kanti,“ bætti Jóhannes við. „Þetta er náttúrulega bara gríðarlegt svekkelsi því hlutirnir voru að mestu leyti að ganga upp hjá okkur í fyrri hálfleik. Og leikmennirnir lögðu ansi mikið á sig til þess að komast í þessa forystu.“ En af hverju ná FH-ingar ekki að verja markið sitt jafn vel í seinni hálfleik og þeim fyrri? „Þeir fá auðvitað einhver færi í fyrri hálfleik þar sem þeir eru að sparka bara úr hafsentastöðu og dæla löngum boltum inn fyrir vörnina. Við vorum aðeins að reyna að stilla okkur af til að vera betur í stakk búnir þegar löngu boltarnir myndu koma í seinni hálfleiknum. Því miður náðum við samt ekki að leysa það. Við myndum þá allavega gefa eftir svæði úti á köntum þar sem við eigum að geta dílað betur við fyrirgjafir sem koma alveg utan af hliðarlínu. Við eigum að díla betur við svona stöður.“ „Við skoðuðm alveg dæmi um þetta í hálfleiknum og við ætluðum að gera betur. Halda orkustiginu háu, en það heppnaðist ekki, því miður.“ FH-ingar eru nú án sigurs í fyrstu fimm umferðum Bestu-deildarinnar. „Það er enginn sáttur með að vera að tapa svona mörum leikjum. Það er auðvitað nóg eftir, en við ræddum það fyrir leik að við þyrftum að laga varnarleikinn okkar og verjast betur sem lið. Það verkefni verður krefjandi og við þurfum að halda áfram að vinna í því. Við vitum alveg að við getum skorað mörk og skapað okkur færi, en varnarleikurinn þarf að lagast ansi fljótt, það er áhyggjuefni.“ Að lokum var Jóhannes spurður út í líðan tveggja leikmanna liðsins, en bæði Sverrir Páll Hjaltested og Ísak Óli Ólafsson fengu höfuðhögg undir lok leiks. Í það minnsta annar þeirra var fluttur á sjúkrahús eftir leik, og mögulega báðir. „Þetta leit ekkert vel út. Ísak og Sverrir lentu þarna í þessu og ég held að Sverrir þurfi að fara upp á sjúkrahús til nánari aðhlynningar. Ísak virðist ekki þurfa að gera það, en auðvitað er þetta gríðarlega vont að fá þessi meiðsli á þessa menn. Vonandi jafna þeir sig fljótt,“ sagði Jóhannes að lokum.
Besta deild karla FH Fram Mest lesið Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Íslenski boltinn Ódýrast að æfa með Þór en dýrast hjá Fram Sport Tiger missir bílprófið í fimm ár Sport Romo játar sök og segist eiga við vanda að stríða Sport Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Enski boltinn Lögreglan hafði afskipti af Víkingum Íslenski boltinn Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Enski boltinn FH - Apollon | Tryggir FH sig áfram? Fótbolti Allt teymi Heimis framlengir Fótbolti Fleiri fréttir „Eins og þeir hafi bara engan áhuga á að vera þarna“ Draumurinn að rætast Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Lögreglan hafði afskipti af Víkingum Myndaveisla: Á fimmta þúsund manns á stórleik KR og Víkings „Það er hrikalegt að sjá þetta“ „Í gær var ég að æfa nákvæmlega sama skot“ Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ „Gæti óskað þeim til hamingju með titilinn núna“ Mörkin úr stórslag KR og Víkings í lýsingu Gumma Ben Sveinn Gísli braut bein í toppslagnum KR - Víkingur 1-1| Hjartahnoð Arnórs Ingva á síðustu stundu Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik Slær Aron markametið í kvöld? „Þetta er síðasti séns fyrir KR-inga“ Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Sjáðu Stjörnuna klára Blika Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Sjáðu geggjað mark Kristófers og öll hin úr Bestu Af Skaganum til Lyngby „Sköpuðum færi eftir færi allan leikinn“ „Stálheppnir að ná í þetta stig“ Sjáðu Frederik refsað grimmilega fyrir töf Uppgjörið: Valur - ÍA 2-2 | Baldvin jafnaði metin fyrir Skagamenn á síðustu stundu Vöktu aðdáun Margrétar Láru: Sigruðust á krabbameini og elska fótbolta „Veit að það á enginn séns í mig í þessari deild“ „Eiður hefur verið fyrirmyndin mín síðan ég var krakki“ Sjá meira
Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn
Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn