Villi vandræðaskáld valinn bæjarlistamaður Akureyrar Agnar Már Másson skrifar 23. apríl 2026 23:39 Vilhjálmur B. Bragason er bæjarlistamaður Akureyrar 2026 Vilhjálmur B. Bragason, eða Villi vandræðaskáld, er bæjarlistamaður Akureyrar 2026 þar sem hann hefru sett mark sitt á listalíf Akureyrar og landsins alls. Hann vakti einnig athygli í Kryddsíldinni síðustu áramót.
Greint er frá bæjarlistamanninum í tilkynningu frá Akureyrarbæ en vorkoma Akureyrarbæjar var haldin í Menningarhúsinu Hofi í dag. Þar var meðal annars kunngjört að bæjarlistamaður Akureyrar 2026 væri Vilhjálmur, sem er leikari, tónlistarmaður og höfundur. Vilhjálmur B. Bragason er bæjarlistamaður Akureyrar 2026Akureyrarbær Í tilkynningu segir að á hátt í 20 ára ferli hafi Vilhjálmur látið til sín taka á afar breiðu sviði listar; hvort sem um sé að ræða tónlist, leiklist, leikstjórn, handritagerð eða þýðingar. Hann hafi sett áþreifanlegt mark sitt á listalíf á Akureyri sem og á landsvísu. Vandræðaskáldið átti atriði í Kryddsíldinni um árið, þar sem Vilhjálmur gerði upp árið 2025. Heiðursviðurkenningu Menningarsjóðs Akureyrarbæjar 2026 hlýtur Kristín Aðalsteinsdóttir fyrir mikilsvert framlag sitt til menningar og mennta á Akureyri og fyrir skráningu og varðveislu á menningararfi Akureyrar og Norðurlands. Sumarlistamaður Akureyrar 2026 er Mahaut Ingiríður Matharel, ungur hörpuleikari sem á framtíðina svo sannarlega fyrir sér. Feðgarnir og arkitektarnir Geirharður Þorsteinsson heitinn og Þorsteinn Geirharðsson hlutu Byggingarlistarverðlaun Akureyrarbæjar fyrir Verkmenntaskólann á Akureyri. 'I tilkynningu segir að þeir hafi haft ríka næmni fyrir fegurð einfaldleikans og skilningi fyrir formun hússins undir starfsemi verk- og bóknáms. Þau séu meginrök faghóps fyrir vali á arkitektunum sem handhöfum byggingarlistaverðlauna Akureyrarbæjar fyrir árið 2026. Mannréttindaviðurkenningum Akureyrarbæjar er ætlað að auka sýnileika þeirra verkefna sem lúta að velferð innan samfélagsins og veita þakkir fyrir framlag í þágu þess. Viðurkenningu í flokki félagasamtaka hlýtur almannaheillafélagið Vonarbrú fyrir mannúðarstarf á Gasa. Viðurkenningu í flokki einstaklinga hlýtur Sæunn Ísfeld Guðmundsdóttir. Sæunni var veitt viðurkenning fyrir störf sín í þágu samfélagsins. Þau störf lúta að sjálfboðaliðastarfi í þágu þeirra sem aðstoðar þurfa vegna aðstæðna sinna og stuðla þannig að velferð einstaklinga og fjölskyldna.
Akureyri Menning Mest lesið Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Lífið Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Lífið Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Lífið Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Lífið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Beint flug til Portó Lífið samstarf Tilgangslaust að rakka niður klæðaburð fólks Tíska og hönnun HAM boða endalok alls Tónlist Miley losar sig við eftirnafnið Tónlist Þórdís segir skilið við Flekaskil Lífið Fleiri fréttir Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira