„Ágætis próf fyrir okkur að fá svona rassskellingu“ Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar 23. apríl 2026 22:13 „Það er nóg eftir af tímabilinu“ Guðmundur Þórlaugarson FH tapaði 3-0 gegn Val í þriðju umferð Bestu deildar karla í kvöld. Liðið fékk öll þrjú mörkin á sig í fyrri hálfleik eftir afar dapra frammistöðu. „
Við svona eiginlega skíttöpuðum leiknum í fyrri hálfleik,“ sagði Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari FH, svekktur eftir 3-0 tap gegn Val. „Við töpum leiknum vegna þess að við réðum ekki við þá varnarlega. Langir boltar og færslur sem gengu frá okkur. Við vorum bara drullu lélegir í fyrri hálfleik og áttum ekkert skilið að fá neitt úr þessum leik þegar þú ert 3-0 undir í hálfleik.“ Var einhvað sem kom þér á óvart í leik Valsmanna sem mættu af miklum krafti í leikinn? „Það kom mér aðeins meira á óvart í leik okkar í fyrri hálfleik að við skyldum ekki geta ráðið við þessar varnarstöður og þessar skyndisóknir hjá þeim. Hafsentarnir okkar voru í miklu brasi með það að verjast á stóru svæði í fyrri hálfleik og við þurftum að gera breytingar á því í hálfleik. Við höndluðum það mikið betur í seinni hálfleik en við vorum í brjáluðu brasi þegar við stigum hærra á völlinn í fyrri hálfleik, ég held það hafi verið nokkuð augljóst.“ Næsti leikur liðsins er á útivelli gegn sjóðheitu liði KR. „Það er auðvitað drullu pirrandi að vera bara með eitt stig eftir þrjá leiki en það er nóg eftir. Það verður ágætis próf fyrir okkur sem hóp að fá svona rassskellingu eins og við fengum hérna í fyrri hálfleik og sjá hvernig menn bregðast við því. Við þurfum að hafa trú á okkur sjálfum og koma kjarkaðir inn í næsta leik. Það bíður okkar verðugt verkefni í Vesturbænum á móti KR sem er náttúrulega heitasta lið landsins eins og er. Við þurfum að geta mætt inn í þann leik af alvöru krafti, með alvöru hugarfar og trú á að við getum farið þangað og náð okkur í úrslit,“ sagði Jói að lokum.
FH Besta deild karla Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn Fleiri fréttir Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins „Óvíst hvar Stefan Ljubicic mun spila“ „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Sjá meira