Sex vítaspyrnur fóru forgörðum í taugatrekkjandi undanúrslitaleik Aron Guðmundsson skrifar 22. apríl 2026 22:03 Leikmenn og þjálfarar Lazio fagna hér sigri kvöldsins Vísir/Getty Lazio er komið áfram í úrslitaleik ítalska bikarsins í fótbolta eftir spennuþrungið einvígi gegn Atalanta sem fór alla leið í vítaspyrnukeppni í kvöld.
Um seinni leik liðanna í einvígi undanúrslitanna var að ræða en þeim fyrri, sem fram fór á heimavelli Lazio, hafði lokið með 2-2 jafntefli. Mikil spenna var í leik kvöldsins og virtist Alessio Romagnoli vera fara langt með að tryggja Lazio farmiðann í úrslitaleikinn er hann skoraði fyrsta mark leiksins á 84.mínútu og kom Lazio yfir, bæði í leiknum og í einvíginu. En aðeins um tveimur mínútum eftir mark Romagnoli jafnaði Mario Pasalic metin fyrir Atalanta og reyndist það síðasta markið í venjulegum leiktíma. Stóðu leikar 1-1 í leiknum, 3-3 í einvíginu. Því þurfti að grípa til framlengingar. Ekkert mark var skorað í framlengingunni og varð því ljóst að einvígið myndi ráðast í vítaspyrnukeppni. Taugar leikmanna voru þandar og það sást á nýtingu beggja liða í vítaspyrnukeppninni. Af þeim níu vítaspyrnum sem teknar voru fóru sex þeirra forgörðum og aðeins þrjár enduðu í netinu. Lazio reyndist hlutskarpara, skoraði úr tveimur vítaspyrnum sínum á móti einni hjá Atalanta. Það er því Lazio sem fer áfram í úrslitaleikinn. Þar bíður viðureign gegn Inter sem sló Como úr leik í gærkvöldi. Úrslitaleikurinn fer fram þann 13. maí næstkomandi í Róm á Ólympíuleikvanginum þar í borg sem vill svo til að er heimavöllur Lazio.
Ítalski boltinn Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport „Guð morning!“ Enski boltinn Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Fótbolti Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn Fleiri fréttir „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjá meira