„Ég er ekkert órólegur“ Valur Páll Eiríksson skrifar 22. apríl 2026 20:47 Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA Vísir/Pawel Hallgrímur Jónasson prísar sig sælan að komast með stig frá Akranesi eftir 1-1 jafntefli hans manna í KA við ÍA í Akraneshöllinni í Bestu deild karla í kvöld. Hann er ánægður með sína menn og segir þetta sterkt stig.
Skagamenn óðu í færum í leik dagsins en varð ekki erindi sem erfiði. KA jafnaði gegn gangi leiksins þegar stundarfjórðungur var eftir 1-1 jafntefli niðurstaðan. Aðspurður um hvort heppnin hafi verið með KA segir Hallgrímur: „Við vorum svolítið heppnir í dag. Við opnuðum leikinn viljandi aðeins meira í seinni hálfleik og fórum hærra á þá. Mér fannst við aðeins of passívir í fyrri hálfleik. Svo við opnuðum aðeins í seinni og við litum betur út en þá vorum við líka opnari til baka. Bæði lið hefðu getað skorað fleiri í seinni og þetta var bara hörkuskemmtilegur leikur.“ Hallgrímur segir sterkt að taka stigið, sér í lagi eftir töp fyrir Stjörnunni og Víkingi í fyrstu tveimur leikjunum, „Við erum ánægðir með að taka stig héðan. Líka bara karakterinn. Við lendum undir, búnir að tapa fyrstu tveimur leikjunum, en náum að koma til baka. Okkur vantaði helvíti marga leikmenn í dag. Þannig að ég er virkilega ánægður með strákana og sagði við þá í klefanum að þetta er gott stig á útivelli. Við vitum að við munum vaxa inn í mótið, við höfum alltaf gert það, og munum gera það í ár aftur.“ Það er gömul saga og ný að KA byrji mót ekkert sérlega vel, líkt og Hallgrímur nefnir. En hvenær á að byrja mót vel? „Mér finnst við hafa byrjað vel í ár en úrslitin hafa ekki dottið með okkur. Og það eru margar ástæður fyrir því. Svo þurfum við að vera heiðarleg og sjá hvaða leikmenn eru að spila í KA núna. Þetta eru leikmenn sem eru nýkomnir, hafa ekki hlutverki í liði í marga mánuði. Það er strákur búinn að spila alla leiki frammi sem hafði aldrei spilað í úrvalsdeild en frammistöðurnar verið virkilega góðar,“ „Ég er ekkert órólegur þó Víkingur og Stjarnan hafi unnið okkur á þessum tímapunkti en maður er extra svekktur af því að frammistaðan var það góð að við áttum skilið tvö til fjögur stig. Ég vil meina að við höfum byrjað betur frammistöðulega en ég átti von á. Stigin komu ekki en ég er ekki stressaður yfir því,“ segir Hallgrímur.
KA Besta deild karla ÍA Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti Ældi blóði, braut rifbein, fór á spítala og svo aftur inn á völlinn Sport Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira