„Það er eiginlega óskiljanlegt“ Valur Páll Eiríksson skrifar 22. apríl 2026 20:36 Lárus Orri var svekktur með jafntefli kvöldsins. Lárus Orri Sigurðsson, þjálfari ÍA, trúði því varla að hans menn hafi ekki unnið KA í 1-1 jafntefli liðanna í Akraneshöllinni í Bestu deild karla í fótbolta í kvöld.
Makalaust var að fylgjast með færanýtingu Skagamanna í leik kvöldsins þar sem fjölmörg upplögð tækifæri fóru í súginn. KA refsaði með jöfnunarmarki þegar korter var eftir og þar við sat. Eftir sitja súrir Skagamenn. „Við vorum náttúrulega mikla betra liðið stærstan hluta leiksins. Fyrri hálfleikurinn var algjörlega okkar. Það er eiginlega óskiljanlegt að við höfum ekki verið þrjú eða tvö núll yfir í hálfleik. Leikurinn átti að vera langt kominn í hléi,“ „Við áttum mun betri sénsa í seinni hálfleik heldur en þeir og það er eiginlega rannsóknarefni að við höfum ekki unnið þennan leik,“ segir Lárus Orri í samtali við Sýn Sport eftir leik. Var ekki erfitt að horfa upp á þessa færanýtingu í kvöld? „Það er vont að horfa upp á það að við skulum ekki nýta færin betur. Við spiluðum mjög vel úti á velli, flottar sóknir og góð pressa hjá okkur. Við vorum bara með þá frá A til Ö og áttum að klára þetta. En svona er þetta, áfram gakk,“ segir Lárus Orri. ÍA er aðeins með tvö stig eftir fyrstu þrjá leikina en miklar kröfur eru gerðar til Skagaliðsins sem spýtti vel í lófana á leikmannamarkaðnum á milli leiktíða. Liðið glutraði niður 3-1 forystu í 3-3 jafntefli gegn Fram í fyrsta leik og tapaði svo fyrir Breiðabliki 1-0 í leik sem ÍA hefði hæglega getað unnið. Uppskeran, hvað stigasöfnun varðar, er dræm. „Stigin endurspegla ekki spilamennskuna. Það er alveg klárt. Svona er þetta bara. Nú er það bara næsti leikur. Við gerum lítið í þessu nema að taka góða hluti úr þessum leikjum en svo þurfum við að skoða hvers vegna við erum ekki að hreinlega loka þessum leikjum,“ segir Lárus Orri.
ÍA Besta deild karla KA Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti Ældi blóði, braut rifbein, fór á spítala og svo aftur inn á völlinn Sport Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira