Valtar yfir eigendur Chelsea og segir stuðningsmenn fyllast viðbjóði Aron Guðmundsson skrifar 23. apríl 2026 09:01 Luton Town v Everton - Premier League - Kenilworth Road Sky Sports pundit Gary Neville before the Premier League match at Kenilworth Road, London. Picture date: Friday May 3, 2024. (Photo by Bradley Collyer/PA Images via Getty Images) Gary Neville, sparkspekingur á vegum Sky Sports og fyrrverandi atvinnu- og landsliðsmaður í fótbolta, segir eigendur Chelsea ekki hafa hugmynd um það hvað þeir séu að gera. Liam Rosenior var rekinn úr starfi knattspyrnustjóra aðeins þremur mánuðum eftir að hafa skrifað undir sex ára samning við félagið.
Fréttirnar af brotthvarfi Rosenior úr starfi komu í gær en hvorki hefur gengið né rekið hjá Chelsea undir hans stjórn. 3-0 tap gegn Brighton á þriðjudagskvöld var kornið sem fyllti mælinn. En spjótin standa að eigendum Chelsea sem tóku þá ákvörðun fyrir ekki svo löngu síðan að reka Enzo Maresca úr starfi og semja við Liam Rosenior, sem starfaði þá sem þjálfari Strasbourg í Frakklandi, til ársins 2032 en sömu eigendur eru hjá Strasbourg og Chelsea. Sex ára samningur sem lifði ekki mikið meira en þrjá mánuði og ljóst að Rosenior er að fá vænan aur í vasann í starfslokagreiðslu. Gary Neville átti ekki von á því að Rosenior myndi lifa út samning sinn við Chelsea en það komi á óvart að hann hafi ekki verið látinn klára yfirstandandi tímabil nú þegar aðeins nokkrar umferðir eru eftir af ensku úrvalsdeildinni. „Nú er tími til kominn fyrir stjórnendur félagsins, yfirmenn og leikmenn að fara í sjálfsskoðun. Stuðningsmenn félagsins fyllast viðbjóði gagnvart því hvernig farið hefur fyrir liðinu,“ sagði Neville á Sky Sports í kvöld. „Þessir sex eða átta ára samningar eru hlægilegir og skiptir ekki máli hvort um ræðir í tilfellum knattspyrnustjóra eða leikmanna. Eigendurnir hafa ekki hugmynd um hvað þeir eru að gera.“ Callum McFarlane, þjálfari undir 21 árs liðs Chelsea, mun stýra aðalliðinu út yfirstandandi tímabil en hann var einnig ráðinn sem knattspyrnustjóri til bráðabirgða þegar að Maresca var rekinn fyrr á tímabilinu. Næsti leikur Chelsea er gegn Leeds United í undanúrslitum enska bikarsins um komandi helgi.
Enski boltinn Chelsea FC Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti Ældi blóði, braut rifbein, fór á spítala og svo aftur inn á völlinn Sport Fleiri fréttir Grealish í agabanni hjá Everton Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað „Enski boltinn er annar heimur“ „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Verða án Sesko fram í janúar „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Guð morning!“ Sjá meira