Sjáðu hrylling Chelsea og stjórann bauna á leikmenn Sindri Sverrisson skrifar 22. apríl 2026 07:30 Liam Rosenior virðist engan veginn ná til sinna leikmanna. Getty/Gareth Fuller Chelsea tapaði í gærkvöld fimmta leiknum í röð í ensku úrvalsdeildinni, án þess að skora mark, en það hefur ekki gerst síðan árið 1912, þegar Titanic sökk. Mörkin úr sigri Brighton má nú sjá á Vísi ásamt svörum Liams Rosenior, stjóra Chelsea, eftir tapið.
Chelsea fékk varla færi í leiknum í gær og hefur nú tapað gegn Brighton, Manchester United, Manchester City, Everton og Newcastle, fengið á sig ellefu mörk í þessum leikjum en ekki skorað eitt einasta mark. Eins og sjá má í spilaranum hér að neðan var Brighton mun betra lðið í gær og sigurinn fyllilega verðskuldaður en mörkin skoruðu Ferdi Kadoglu, Jack Hinshelwood og Danny Welbeck. Klippa: Brighton - Chelsea 3-0 Með sigrinum komst Brighton upp fyrir Chelsea, í 6. sæti með 50 stig, tveimur meira en Chelsea, þegar liðin eiga fjóra leiki eftir. Brentford og Bournemouth eru svo einnig með 48 stig og eiga leik til góða. Sjötta sætið gæti enn mögulega dugað til að komast í Meistaradeild Evrópu en bara ef að Aston Villa endar í 5. sæti og vinnur jafnframt Evrópudeildina. Rosenior gerir sér eflaust fulla grein fyrir því hve skelfileg staða Chelsea er orðinn og hann beindi spjótum sínum að eigin leikmönnum eftir tapið í gær: „Ég hef varið leikmenn þegar ég taldi það rétt en ég get ekki varið þessa frammistöðu. Ég get ekki varið neitt varðandi hana. Hún er ekki í samræmi við þetta félag eða nokkuð sem ég ætlast til af hópnum. Þetta verður að breytast. Verður að breytast,“ sagði Rosenior eins og sjá má í spilaranum hér að ofan.
Enski boltinn Mest lesið Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Enski boltinn Elías og félagar flugu áfram Fótbolti Palacios til Ipswich Enski boltinn Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Fótbolti Reynir Þór með fína frammistöðu í tapi Handbolti Gísli tekur við og stýrir Víkingi í næstefstu deild Handbolti Róbert Frosti og Daníel Tristan á skotskónum Fótbolti Dregið í Meistaradeild: Hákon mætir Arsenal og Bayern Fótbolti Tólf tíma þrekraun Elísu með þeim bestu í heimi: „Hentar mér mjög vel“ Sport Kristall skoraði þegar Brann komst áfram Fótbolti Fleiri fréttir Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Cody Gakpo orðaður við Manchester City Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Watkins virðist vilja fara frá Aston Villa Newcastle að fá miðjumann Man. City Efast um Iraola: „Hvar eru stóru strákarnir“ Reknu vinirnir mætast í London Myndi ekki sofa á nóttunni: „Enn þá bara sama gamla Tottenham“ Liverpool og City muni ekki berjast um titilinn Sjá meira