Valsmenn opna veskið til að landa Samúel Kára Sindri Sverrisson skrifar 21. apríl 2026 19:41 Samúel Kári Friðjónsson í baráttunni gegn FH síðasta föstudagskvöld. Var það hans síðasti leikur fyrir Stjörnuna? vísir/Anton Valsmenn eru sagðir vera að landa miðjumanninum Samúel Kára Friðjónssyni frá Stjörnunni, fyrir umtalsverða upphæð.
Dr. Football greindi fyrst frá því á X að Samúel væri á leiðinni í Val og samkvæmt upplýsingum Vísis er allt útlit fyrir að kaupin gangi eftir. Mögulegt kaupverð liggur ekki fyrir en er sagt hátt og gæti Samúel orðið einn dýrasti leikmaður deildarinnar. Samúel Kári er að ganga til liðs við Val frá Stjörnunni. TicTac pic.twitter.com/7k66hqshkK— Dr. Football Podcast (@drfootballpod) April 21, 2026 Samúel Kári var í byrjunarliði Stjörnunnar í fyrsta leik tímabilsins í Bestu deildinni en kom svo inn á sem varamaður í sigrinum gegn FH síðasta föstudag. Þessi þrítugi miðjumaður sneri heim til Íslands úr atvinnumennsku fyrir síðasta tímabil og var í stóru hlutverki hjá Garðbæingum í fyrra. Samningur hans við Stjörnuna átti að gilda út árið 2028. Samúel er að upplagi Keflvíkingur en fór ungur að árum í atvinnumennsku til Reading á Englnadi og lék svo í Noregi, Þýskalandi og Grikklandi áður en hann kom til Stjörnunnar. Hann á að baki átta A-landsleiki og var í fyrsta og eina HM-hópi Íslands sem fór á heimsmeistaramótið í Rússlandi sumarið 2018, þá 22 ára gamall. Stjarnan og Valur verða bæði í eldlínunni á fimmtudagskvöld en þá sækja Stjörnumenn Víkinga heim og Valsmenn taka á móti FH-ingum. Ekki náðist í forráðamenn Vals og Stjörnunnar við vinnslu greinarinnar.
Besta deild karla Valur Stjarnan Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti Ældi blóði, braut rifbein, fór á spítala og svo aftur inn á völlinn Sport Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira