„Góður dagur fyrir rauða hluta Liverpool“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. apríl 2026 20:00 Mohamed Salah og Florian Wirtz fagna marki saman í sigrinum á Everton í dag. Getty/Molly Darlington Arne Slot, knattspyrnustjóri Liverpool, var sáttur eftir dramatískan sigur Liverpool í borgarslagnum á móti Everton í ensku úrvalsdeildinni í dag. „
Leikmenn mínir gerðu það sem ég vonaði að þeir myndu gera, það sem ég bjóst við að þeir myndu gera og veittu Everton harða keppni. Að lokum var unun að sjá markið skorað því stuðningsmenn okkar á útivelli voru frábærir í dag. Góður dagur fyrir rauða hluta Liverpool,“ sagði Arne Slot. „Við urðum betri og betri eftir því sem leið á leikinn. Þegar þeir jöfnuðu í 1-1 var það á þeirri stundu sem ég bjóst síst við því þar sem við byrjuðum seinni hálfleikinn vel. Síðan undir lokin héldum við áfram að þjarma að þeim, vorum nálægt því nokkrum sinnum, og svo er gaman fyrir okkur að skora mark sem maður myndi búast við að Everton myndi skora – úr föstu leikatriði,“ sagði Slot. 😘©️ pic.twitter.com/DzuuN4boxy— Liverpool FC (@LFC) April 19, 2026 „Stuðningsmennirnir hafa séð okkur spila við tvö ótrúleg lið, PSG og Manchester City, og við höfum tapað fyrir þeim báðum. Yfir allt tímabilið hafa allir þessir leikir með takmörkuðum fjölda leikmanna í boði komið niður á okkur og kostað okkur ansi mörg stig,“ sagði Slot. „En í dag er sannarlega dagur fyrir stuðningsmennina til að gleðjast. Það er það sem við munum gera,“ sagði Slot sem ætlar að njóta sigursins. „Við ætlum að njóta þess. Starfslið mitt, leikmenn mínir og ég. Það er enginn munur á okkur og stuðningsmönnunum, við hefðum gjarnan viljað eiga betra tímabil en við höfum átt. Þannig hefur tímabilið okkar verið en okkur tókst að vinna og það er það mikilvægasta,“ sagði Slot. Um meiðsli markvarðarins Giorgi Mamardashvili: „Þetta leit ekki vel út, þetta var stórt sár og hann fór beint á spítala. Við skulum sjá hvernig það fer fyrir hann en óttumst það versta – ekki varðandi langtímameiðsli heldur fyrir næstu viku,“ sagði Slot. "If we don't qualify for Champions League, it's very poor"Arne Slot on Liverpool's season 👀 pic.twitter.com/c9yvBqopm2— Sky Sports Premier League (@SkySportsPL) April 19, 2026
Enski boltinn Liverpool FC Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti Ældi blóði, braut rifbein, fór á spítala og svo aftur inn á völlinn Sport Fleiri fréttir Grealish í agabanni hjá Everton Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað „Enski boltinn er annar heimur“ „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Verða án Sesko fram í janúar „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Guð morning!“ Sjá meira