Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 19. apríl 2026 10:04 Lögreglan á vettvangi í Kænugarði. AP Að minnsta kosti sex létust eftir að maður hóf skothríð í höfuðborg Úkraínu í gær. Hann skaut að fólki úti á götu og tók síðan gísla í matvöruverslun.
Atvikið átti sér stað í Kænugarði, höfuðborg Úkraínu. Ekki liggur fyrir hversu margir létust en talið er að þeir hafi verið að minnsta kosti sex. Maðurinn, sem var 58 ára, hóf að skjóta á fólk á götu úti og létust fjórir, þar á meðal kona í kringum þrítugt. Einn lést til viðbótar eftir komu á sjúkrahús. Þá fór hann inn í matvöruverslun og tók þá sem voru inni í búðinni í gíslingu. Að minnsta kosti einn gísl lést. Lögreglan reyndi að ræða við manninn í um fjörutíu mínútur á meðan hann var inni í búðinni. Hún komst að því að einn væri slasaður inni í versluninni og reyndi að bjóða skotmanninum sárabindi en það gekk ekki. Að lokum var skotmaðurinn drepinn af lögreglunni. „Við buðumst til að koma með sárabindi til að stoppa blæðinguna og þess háttar. En hann svaraði ekki svo skipunin var að útrýma honum, sérstaklega eftir að hann drap einn gíslanna,“ segir Ihor Klymenko, innviðaráðherra Úkraínu, samkvæmt BBC. Fjórir gíslar komust lífs af. Vólódímir Selenskí, forseti Úkraínu, sagði að fjórtán hefðu slasast, þar á meðal tólf ára strákur. „Það hefur verið staðfest að árásarmaðurinn kveikti í íbúð áður en hann fór út á götu með vopn. Hann hafði áður verið ákærður fyrir refsiverð brot. Hann hafði lengi búið í Donetsk-héraði og fæddist í Rússlandi,“ segir Selenskí í færslu á X.
Úkraína Mest lesið Fella niður 26 flugferðir Innlent Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Innlent Segir stóra ákvörðun framundan Erlent „Gengið með eins eðlilegum hætti og hægt er“ Innlent Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Innlent Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Innlent Lögreglan leitar að Arturas Innlent Hvannadalshnjúkur lækkar Innlent Gular viðvaranir á morgun Veður Hjól Eyjabarna skrúfuð í sundur Innlent Fleiri fréttir Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Svona var ræða Trumps: Spurning um „gereyðingu“ og nýtt nafn á gervigreind Í leyfi á meðan kosningasvik eru til rannsóknar Bein útsending: Ræða Trumps á allsherjarþinginu Bretar ætla að aðstoða Sáda gegn Hútum Beita buddunni til að vega á móti óvinsældum Trumps Rétta yfir konu spænska forsætisráðherrans Grunur um alvarlegt kosningasvindl í Svíþjóð Stefna að tveimur nýjum herstöðvum á Grænlandi Sniðganga Hvíta húsið Bað Selenskí um að stöðva árásir á rússneskar olíuvinnslur Höfða mál gegn Trump vegna bannsins Pútín sló öll met Sigurboginn verður leyniskyttuhreiður Maður á níræðisaldri lést í átökum um sólbekk Noregur og Kanada auka samstarf í varnarmálum Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Mótmæli í Texas vegna ICE-liða Kallar kosningarnar „hörmung“ en heitir því að fara ekki fet Senda Trump pillu vegna Ameríkukorts „Myndi ekki skrifa undir samkomulag ef það væri ekki gott“ Framtíð kanslarans í húfi Ætlar sér að skipa „gervigreindarkeisara“ Sérstakt veiðileyfi gefið út eftir að hákarl banaði sundmanni á sjötugsaldri Utanríkisráðherra Úkraínu lýsir yfir gríðarlegu þakklæti Vissi að viðræðum miðaði fram „þrátt fyrir skrítin kort“ Sjá meira