„Ég elska það sem ég er að gera“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. apríl 2026 21:35 Michael Carrick fagnar sigri Manchester United með Matheus Cunha sem skoraði sigurmarkið á Stamford Bridge í kvöld. Getty/Poppy Townson Michael Carrick, knattspyrnustjóri Manchester United, var himinlifandi með 1-0 útisigur á Chelsea í kvöld en eftir hann er United tíu stigum fyrir ofan sjötta sætið og steig því með þessum þremur stigum risaskref í átt að Meistaradeildarsæti á næstu leiktíð. „
Ég get ekki gert lítið úr þessu því þetta var gríðarlega mikilvægt fyrir okkur. Þeir fengu nokkur færi en mér fannst Ayden og Nouss vera alveg ótrúlegir. Ayden [Noussair Mazraoui] er svo ungur og Ayden [Heaven] spilar eiginlega ekki sem miðvörður í fjögurra manna vörn,“ sagði Michael Carrick en hann þurfti að glíma við mikil forföll í miðvarðarstöðunni í kvöld. Carrick hefur breytt miklu hjá Manchester United en hvað lagði hann áherslu á? „Láta leikmönnunum líða vel. Fá þá til að meta það að spila fyrir þetta frábæra félag, sem gleymist stundum auðveldlega. Og svo að reyna að stilla þeim upp í leikkerfi sem við töldum henta öllum. Ég held að við getum spilað betur, það er margt sem á eftir að bætast við. En úrslit byggja upp skriðþunga og gefa okkur grunn,“ sagði Carrick. Bruno Fernandes lagði upp sigurmark Matheus Cunha í kvöld og hefur þar með gefið átján stoðsendingar í deildinni. Hann vantar þrjár í fimm síðustu leikjunum til þess að setja nýtt met. „Áhrif hans hafa verið gríðarleg frá því ég kom hingað fyrst. Hann er mikill persónuleiki, hann er fyrirliði af ástæðu. Hann er hávær og hefur bara mikla nærveru á vellinum,“ sagði Carrick. „Við höfum ekki náð frábærum árangri hér í gegnum árin. Við getum spilað betur en sumir leikir snúast um að ná í úrslit; það er engin skömm í því. Að upplifa þessa stund með stuðningsmönnunum í lokin, strákarnir nutu þess,“ sagði Carrick. En hvað um framtíð hans hjá félaginu enda enn bara í starfi sem bráðabrigðastjóri? „Ég elska að vera hér, ég elska það sem ég er að gera og ég vil vera hluti af kvöldum eins og þessu. Ég skil stöðuna; hún er svolítið úr mínum höndum. Við sjáum hvað gerist,“ sagði Carrick.
Enski boltinn Manchester United Chelsea FC Mest lesið Flugóður forseti FIFA Fótbolti Þvottabjörn Haalands uppseldur og sá sem bjó hann til kominn á eftirlaun Fótbolti Ástæðan fyrir því að Bellingham sló til Barco eftir leik Fótbolti Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Handbolti Gráti nær þegar hann frétti að hann myndi dæma úrslitaleikinn Fótbolti Siggi Raggi græddi á lygilegri atburðarás Fótbolti Heimsmeistarar fá hring Fótbolti „Fjögur ár eru langur tími“ Fótbolti „Ég er fyrst og fremst vonsvikinn með sjálfan mig“ Fótbolti Var rifrildið við Bellingham það sem kveikti í Messi? Fótbolti Fleiri fréttir Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sjá meira