Launin ekki aðalatriði og bónus að hafa fjölskylduna nálægt Sindri Sverrisson skrifar 16. apríl 2026 14:16 Oliver Heiðarsson er orðinn leikmaður KA og gæti þreytt frumraun sína gegn Víkingi á morgun. KA Sóknarmaðurinn Oliver Heiðarsson lenti á Akureyri í gærmorgun og gæti spilað sinn fyrsta leik með KA gegn Íslandsmeisturum Víkings á morgun. Hann var afar eftirsóttur hér á landi eftir að ljóst varð að hann kæmi heim frá Króatíu.
Oliver hélt í atvinnumennsku til Lokomotiva Zagreb í Króatíu í byrjun árs, eftir að hafa staðið sig vel með ÍBV og áður FH, en fékk engin tækifæri til að sýna sig og sanna með króatíska liðinu og snéri því heim. Í Bestu deildinni stóðu honum hins vegar margar dyr opnar og á endanum varð Eyjafjörður fyrir valinu en þar er pabbi Olivers, fyrrverandi landsliðs- og atvinnumaðurinn Heiðar Helguson, uppalinn: „Það spilar eitthvað inn í en það er ekki stór ástæða fyrir þessari niðurstöðu. En það er alltaf bónus að hafa fjölskylduna nálægt og pabbi er náttúrulega frá Dalvík, þannig að það er fullt af nánu frændfólki og ömmum hérna,“ segir Oliver við Vísi. Ræddi við þjálfara Breiðabliks og Vals Hans gömlu félög FH og ÍBV höfðu áhuga á að fá hann í sínar raðir, sem og Keflavík, Breiðablik og Valur, og átti Oliver samtöl við þjálfara tveggja síðastnefndu félaganna. „Ég átti gott spjall við Óla [Ólaf Inga Skúlason] og einnig við Hemma [Hermann Hreiðarsson], og svona kannski pældi mest í því. En á endanum kaus ég bara KA. Þetta gekk ágætlega hratt þannig séð. Ég átti líka gott spjall náttúrulega við Hadda [Hallgrím Jónasson, þjálfara KA], umgjörðin og liðið sjálft… stefnan hérna er bara að klifra eins hátt upp töfluna og hægt er. Ég sé mig bara fyrir mér standa mig vel með KA-liðinu í sumar. Þeir eru náttúrulega búnir að taka „forsetabikarinn“ núna tvö ár í röð og við erum klárlega með að mínu mati aðeins betra lið heldur en í fyrra. Þannig að við ættum að stefna ofar heldur en forsetabikarinn og við getum alveg klárlega gert það með liðið sem við höfum í dag,“ segir Oliver. „Verður ekkert betri nema með pressu og samkeppni“ Samkvæmt fyrstu fréttum Fótbolta.net af vistaskiptunum þá bauð KA einfaldlega mjög góð laun. Hafði það ekki líka sitt að segja? „Ekki beint sko, peningar skipta ekkert öllu. Þetta er aðallega bara hvernig manni líður og hvar maður sér sig standa sig best,“ segir Oliver. Nú þegar Oliver, Danijel Djuric og fleiri hafa bæst í liðið virðist meira en nóg af sóknarvopnum í búri KA en Oliver fagnar því og ætlar sér stóra hluti: „Klárlega. Maður verður ekkert betri nema maður sé með smá pressu og samkeppni í eins mörgum stöðum og hægt er og ég segi að þetta sé bara jákvætt, að það sé erfitt að velja sóknarlínuna. Að sjálfsögðu stefnum við alla vega á Evrópu og svo sjáum við bara hvernig skriðið á liðinu verður. Við byrjum bara á morgun á móti Víkingi og höldum áfram þaðan. Við ætlum bara að reyna að vinna alla leiki og byrja á morgun.“ Of snemmt að byrja gegn Víkingum Aðspurður hvort hann gæti byrjað leikinn gegn Víkingum segir Oliver það fullsnemmt: „Ég þarf að koma mér aðeins í gang áður en að ég get farið að spila alvörumínútur. Þannig að ég hugsa að ef ég spili þá sé það ekkert rosalega mikið á meðan ég er að komast af stað. En það er búið að taka mjög vel á móti manni og það er mikil tilhlökkun að koma mér af stað, byrja að æfa almennilega og allt það,“ segir Oliver.
Besta deild karla KA Mest lesið „Viljum ekki drepa þig en nú er nóg komið“ Fótbolti Belgar stigu Trump-dans og skutu föstum skotum Fótbolti Maður dagsins á HM: Feimni boltastrákurinn sem gerði gestgjöfunum grikk Fótbolti Frakkar áfrýja spjaldi til FIFA Fótbolti Kallar Infantino trúð: „Sleikjandi rassgatið á ríku köllunum“ Fótbolti Rodri skammaðist sín og baðst fyrirgefningar Fótbolti Infantino gefur út yfirlýsingu vegna afskipta Trumps Fótbolti Allt að verða vitlaust í Noregi: „Þjóðin komin með mjög óraunhæfar væntingar“ Fótbolti Balogun fékk að spila en Belgar áfram eftir stjörnuleik Fótbolti Rasísk ummæli þingmanns um Mbappé harðlega gagnrýnd Fótbolti Fleiri fréttir Keflavík - Fram 1-1 | Heimamenn upp í efri hlutann Amin Cosic orðinn leikmaður Noregsmeistaranna Fór betur en áhorfðist hjá Aroni Snæ Með sitt eigið HM í Bestu deildinni Þór yngri en þegar báðir bræður hans skoruðu sitt fyrsta mark Alex Freyr: „Það er kominn hundur í menn” Völsungsliðin skoruðu sex mörk en fengu bara eitt stig ÍBV-Valur 1-0 | Alex Freyr í aðalhlutverki í enn einum Eyjasigri ÍA – Breiðablik 1-2 | Endurkomusigur Blika sem spilltu gleðinni á Akranesi Uppgjörið: Liðin skiljast jöfn í Kaplakrika Hafa ekki unnið nágrannana hinum megin við hraunið í þrjú ár Fyrsti markvörðurinn til að skora utan af velli í 48 ár Sjáðu skrautlegu mörkin fyrir norðan og dramatíkina í Víkinni Sumarmótin: Æfir út í dómarann þrátt fyrir sigur Átti Amin að sjá rautt? Uppgjörið: Víkingur - KA 3-2| Endurkomusigur hjá Víkingum sem þurfti að hafa vel fyrir því „Stundum þarf bara að vinna að alvöru fyrir þessu“ Uppgjör Þór Ak. - KR | 3-3. Endurkoma hjá KR „Mér leið svipað í 3-0 eins og í 0-0“ Markvörður Þórs skoraði ótrúlegt mark gegn KR Sjáðu skemmtileg og mismunandi fagnaðarlæti strákanna á Orkumótinu KR-ingar mæta eina liðinu sem er búið að fá á sig fleiri mörk en þeir „Ég er farinn“ Þórsarar taka á móti KR-ingum í Gedda-treyjunni „Þú verður að spyrja hann að því“ Seldu einn sinn besta leikmann til Bandaríkjanna Aðstoðarþjálfari Stjörnunnar segir upp Albert um KA: „Eins og þú hafir verið fullur í Football Manager“ Halldór Árna: Víkingar sáu hið fullkomna tímabil en þetta er fljótt að breytast „Mér finnst það bara algjört bull“ Sjá meira