„Gáfum ódýr mörk“ Árni Gísli Magnússon skrifar 12. apríl 2026 20:19 Hallgrímur þurfti að þola tap í dag. Vísir/Anton Brink Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, var ánægður með frammistöðuna þrátt fyrir óhagstæð úrslit hans manna sem töpuðu 3-2 fyrir Stjörnunni í fyrstu umferð Bestu deildar karla í dag.
Gestirnir komust yfir eftir tæpar þrjár mínútur og bættu fljótlega við og leiddu 2-1 í hálfleik. Þeir byrjuðu svo seinni hálfleikinn betur og unnu að lokum 2-3 sigur. „Við spiluðum virkilega góðan leik, mjög góð frammistaða og bara ótrúlega ánægður með strákana. Við mættum góðu liði og því miður þá fengum við á okkur frekar ódýrt mark eftir tvær mínútur bara held ég, sló okkur aðeins út af laginu og mér fannst Stjarnan mun betri fyrstu 20-25 mínúturnar en svo fannst mér við koma vel inn í leikinn og svona eiginlega tökum yfir leikinn,“ „Þannig ég er mjög ánægður með leikinn, svekktur með niðurstöðuna en þetta er fyrsti leikur. Fáum gott lið heima, erum alltaf smá óviss hérna fyrir norðan hvar stöndum við því maður fær ekki það mikið af góðum leikjum og þetta gaf mér bara virkilega gott svar.“ Öll þrjú mörk Stjörnunnar voru frekar einföld og varnarleikur KA ekki upp á marga fiska í aðdragandanum sem reyndist dýrkeypt. „Þeir fá mjög ódýr mörk og dæmt af okkur löglegt mark heyri ég, þannig í staðinn fyrir að við setjum í 1-1 komast þeir í 2-0, það var náttúrulega mjög svekkjandi en ég meina við eru með 22 skot og þeir tíu, við erum með hærra xG, við erum með níu horn á móti þremur, við erum yfir í rosalega mörgum þáttum. Því miður áttum við bara að skora fleiri mörk og það er hárrétt hjá þér, við gáfum ódýr mörk en við lærum af því og síðasta markið óheppilegt, Markús (Máni Pétursson bara) óheppinn, hann einhvern veginn leggur boltann bara beint fyrir hann og það er bara það sem getur gerst. Hann er ungur og lærir og hann stóð sig vel í leiknum.“ Er eitthvað sérstakt sem þú vilt skerpa á í varnar leiknum fyrir næsta leik? „Já við bara förum yfir það, mér fannst við aðeins of passívir. Stjarnan eru góðir í að byggja upp og eru margir í hæstu línu og vorum smá stund að finna út úr því eftir að við breyttum smá með Rodri (Gomes Mateo) og Jeppe (Pedersen) á miðjunni þá fannst mér við ná góðum tökum á þessu en Stjarnan spilar allt öðruvísi en Víkingur þannig við erum ekkert að spá í akkúrat þeim parti á móti þeim.“ Jakob Snær Árnason átti að vera í byrjunarliðinu en meiddist í upphitun og í hans stað kom inn Jakob Héðinn Róbertsson sem skoraði en haltraði af velli í síðari hálfleik.Þá fór Birgir Baldvinsson af velli í seinni hálfleik eitthvað lemstraður og Diego Montiel kom inn á sem varamaður seint í leiknum en meiddist eftir aðeins hálfa mínútu um það bil og þurfti að fara af velli. Hallgrímur var spurður út í stöðuna á þessum mönnum. „Lentum bara í skakkaföllum og erum með meiðsli fram á við og þetta var ekkert að hjálpa til en þeir stóðu sig vel. Diego (Montiel) er held ég bara með skurð eftir takkana, ég held að það sé ekki slæmt. Jakob (Héðinn Róbertsson) er bara með krampa og búinn að hlaupa mikið djúpt og það er í raun ekkert vesen. Biggi (Birgir Baldvinsson) var bara þreyttur, búinn að hlaupa upp og niður og skora þannig það er ekkert að honum.“
KA Besta deild karla Stjarnan Mest lesið Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Íslenski boltinn Ódýrast að æfa með Þór en dýrast hjá Fram Sport Tiger missir bílprófið í fimm ár Sport Romo játar sök og segist eiga við vanda að stríða Sport Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Enski boltinn Uppgjörið: FH-Apollon 1-0 | Evrópudraumur Hafnfirðinga heldur áfram Fótbolti Lögreglan hafði afskipti af Víkingum Íslenski boltinn Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Enski boltinn Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn Allt teymi Heimis framlengir Fótbolti Fleiri fréttir Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir: ,,Hleyptum óþarfa stressi í leikinn” Guðni Eiríksson: ,,Við spilum fyrir þetta fólk og munum alltaf gera það” „Eins og þeir hafi bara engan áhuga á að vera þarna“ Draumurinn að rætast Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Lögreglan hafði afskipti af Víkingum Myndaveisla: Á fimmta þúsund manns á stórleik KR og Víkings „Það er hrikalegt að sjá þetta“ „Í gær var ég að æfa nákvæmlega sama skot“ Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ „Gæti óskað þeim til hamingju með titilinn núna“ Mörkin úr stórslag KR og Víkings í lýsingu Gumma Ben Sveinn Gísli braut bein í toppslagnum KR - Víkingur 1-1| Hjartahnoð Arnórs Ingva á síðustu stundu Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik Slær Aron markametið í kvöld? „Þetta er síðasti séns fyrir KR-inga“ Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Sjáðu Stjörnuna klára Blika Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Sjáðu geggjað mark Kristófers og öll hin úr Bestu Af Skaganum til Lyngby „Sköpuðum færi eftir færi allan leikinn“ „Stálheppnir að ná í þetta stig“ Sjáðu Frederik refsað grimmilega fyrir töf Uppgjörið: Valur - ÍA 2-2 | Baldvin jafnaði metin fyrir Skagamenn á síðustu stundu Vöktu aðdáun Margrétar Láru: Sigruðust á krabbameini og elska fótbolta Sjá meira
Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn
Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn