Fram og KR eiga léttustu byrjunina Sindri Sverrisson skrifar 10. apríl 2026 12:30 Kennie Chopart og félagar í Fram mæta sterkustu liðum landsins ekki í fyrstu umferðunum. vísir/Guðmundur Íslandsmeistarar Víkings mæta Breiðabliki í kvöld í sannkölluðum stórleik þegar ný leiktíð hefst í Bestu deild karla í fótbolta. En hvaða lið eiga auðveldustu dagskrána í upphafi móts og hver þeirra eiga þá erfiðustu?
Ef liðunum í deildinni er styrkleikaraðað í samanburði við spá fyrirliða, þjálfara og formanna félaganna má færa fyrir því rök að Fram og KR eigi auðveldustu byrjunina á tímabilinu. Dagskráin er hins vegar sérstaklega erfið hjá nýliðunum Þór og Keflavík. Vísir skoðaði leikjadagskrána í fyrstu sex umferðum liðanna. Flest spila þau þrjá heimaleiki og þrjá útileiki en nýliðarnir neyðast þó til að byrja á tveimur útileikjum og leika alls fjóra útileiki en tvo heimaleiki í fyrstu sex umferðunum. Það sama á við um FH-inga en í staðinn fá Víkingur, KA og Fram að spila fjóra heimaleiki í fyrstu sex umferðunum. Framarar mæta á þessum upphafskafla engu af liðunum fjórum sem spáð er efstu sætunum. Þeir byrja á hörkuleik við ÍA á sunnudaginn og spila svo við liðin fjögur sem spáð er neðstu sætunum. Leikir liðanna í fyrstu sex umferðunum í Bestu deildinni.Vísir Svipaða sögu er að segja af KR sem byrjar tímabilið á því að mæta liðunum fjórum sem spáð er neðstu sætunum en eiga svo leiki við Val og Stjörnuna á útivelli í 5. og 6. umferð. Breiðablik mun svo einnig mæta liðunum fjórum sem spáð er neðst, öllum í röð, en þarf að byrja á því að spila við meistarana í kvöld og svo við Skagamenn í 2. umferð. Nýliðum Þórs er spáð neðsta sæti, þrátt fyrir að hafa unnið Lengjudeildina í fyrra, og þeir þurfa að byrja á útileikjum við Val og KR. Líkt og Keflavík munu þeir hvorki mæta FH né ÍBV, né mætast þau innbyrðis, fyrr en að líða tekur á mótið. Íslandsmeistarar Víkings mæta Breiðabliki, Stjörnunni og Val í fyrstu fjórum umferðunum, áður en þeir takast á við nýliðana tvo, en leikjadagskrá liðanna allra má sjá hér að ofan. Stórleikur Víkings Reykjavíkur og Breiðabliks í fyrstu umferð Bestu deildar karla í fótbolta hefst klukkan korter yfir sjö í kvöld og verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn Sport Ísland. Upphitun hefst hálftíma fyrr. Fyrsta umferð Bestu deildarinnar á Sýn Sport Föstudagur 10. apríl 19:15 Víkingur R. - Breiðablik (Sýn Sport Ísland) Sunnudagur 12. apríl 13:00 ÍBV - FH (Sýn Sport Ísland) 16:45 Besta messan (Sýn Sport Ísland) 17:00 KR - Keflavík (Sýn Sport Ísland 2) 17:00 Valur - Þór (Sýn Sport Ísland 4) 17:00 KA - Stjarnan (Sýn Sport Ísland 5) 21:35 Stúkan (Sýn Sport Ísland)
Besta deild karla Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Fótbolti Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira