Tómas Bent mögulega í úrslitaleik um titilinn á lokadeginum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. apríl 2026 14:00 Tómas Bent Magnússon og félagar í Hearts eru í aðalhlutverki í titilbaráttunni en félagið hefur ekki orðið skoskur meistari í 66 ár. Getty/Roddy Scott Hearts og Celtic gætu mæst í hreinum úrslitaleik um skoska meistaratitilinn á lokadegi tímabilsins í skosku úrvalsdeildinnni í fótbolta eftir að forráðamenn deildarinnar gáfu út leikjaniðurröðunina eftir skiptingu deildarinnar.
Tólf liða efstu deild í Skotlandi er skipt í tvo sex liða hluta eftir 33. umferðina sem er um komandi helgi. Rangers er þriðja liðið sem tekur þátt í þessu þriggja liða kapphlaupi um titilinn. Skoska deildin reynir venjulega að forðast það sem gæti orðið að úrslitaleik milli Celtic og Rangers vegna öryggismála og síðasti Glasgow-slagur tímabilsins, þar sem ríkjandi meistarar Celtic taka á móti Rangers, hefur verið settur á sunnudaginn 10. maí eða í þriðju síðustu umferðinni. Tómas Bent Magnússon og félagar í Hearts hafa komið öllum á óvart á þessu tímabili og liðið frá Edinborg, sem hefur óvænt verið lengi í forystu, hefur leik eftir skiptinguna með grannaslag á útivelli gegn Hibernian sunnudaginn 26. apríl. Forysta Hearts á Rangers minnkaði í eitt stig um helgina en liðið tekur á móti Rangers mánudaginn 4. maí næstkomandi. Síðasti leikur Rangers á deildartímabilinu er þriðja heimsóknin til Falkirk, sem hefur einum heimaleik fleira en öll hin liðin vegna ójafnvægis í leikjafjölda, þar sem búist var við að þeir myndu enda í neðri hluta töflunnar. Hearts varð síðast skoskur meistari árið 1960 eða fyrir 66 árum síðan. Celtic hefur unnið undanfarin fjögur ár og Rangers vann síðast árið 2021. Annaðhvort Celtic eða Rangers hafa unnið titilinn frá 1985 eða síðan að Aberdeen varð síðast meistari, þá undir stjórn Sir Alex Ferguson.
Skoski boltinn Mest lesið Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport „Enski boltinn er annar heimur“ Enski boltinn Grealish í agabanni hjá Everton Enski boltinn Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ Fótbolti Fleiri fréttir Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Njarðvík sagði upp samningi við Smit Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Freyr að eignast markakóng eftir enn einn sigurinn Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Góður sigur stráka Sigga Ragga í lokaleiknum Gylfi tekur við Víkingi Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Sjá meira