Segja að Rodriguez sé ekki með sjaldgæfan sjúkdóm Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. apríl 2026 17:16 James Rodriguez þurfti að fara á sjúkrahús eftir landsleik Kólumbiumanna á dögunum. Liðið var að undirbúa sig fyrir HM í fótbolta i sumar. Getty/Elizabeth Ruiz Ruiz Bandaríska fótboltafélagið Minnesota United hefur neitað orðrómi um að kólumbíski miðjumaðurinn James Rodriguez þjáist af hugsanlega lífshættulegum vöðvarýrnunarsjúkdómi.
Þessi fyrrum markakóngur heimsmeistaramótsins sneri aftur á æfingasvæði félagsins á mánudag eftir að hafa verið lagður inn á sjúkrahús. Hinn 34 ára gamli Rodriguez sýndi merki um veikindi sín í 3-1 tapi Kólumbíu gegn Frakklandi þann 29. mars síðastliðinn og var í kjölfarið þrjá daga á sjúkrahúsi vegna alvarlegrar ofþornunar. Í yfirlýsingu frá kólumbíska knattspyrnusambandinu þann 2. apríl var staðfest að Rodriguez væri undir eftirliti vegna læknisfræðilegs ástands sem ekki tengist íþróttum en sagði að horfur hans væru „góðar“. Orðrómur á samfélagsmiðlum og fréttir í sumum bandarískum fjölmiðlum vöktu áhyggjur af því að hann þjáðist af rákvöðvalýsu (rhabdomyolysis) – sjaldgæfum sjúkdómi sem stundum er tengdur við ofreynslu og veldur því að vöðvar brotna niður og getur leitt til hugsanlega banvæns nýrnaskaða þegar eitraðir vöðvaþræðir komast út í blóðrásina. „Félagið og heilbrigðisstarfsfólk okkar geta ótvírætt staðfest að engar klínískar eða rannsóknarstofuniðurstöður hafa sýnt fram á rákvöðvalýsu,“ sagði MLS-félagið Minnesota United í yfirlýsingu. Rodriguez, sem vann Meistaradeildina tvisvar með Real Madrid og lék einnig með úrvalsdeildarliðinu Everton, tók þátt í „endurkomuæfingu undir eftirliti“ á mánudag. Endurkoma hans á fullar æfingar verður í höndum læknateymis félagsins. Rodriguez hefur leikið tvo leiki í MLS síðan hann gekk til liðs við Minnesota United í febrúar.
Bandaríski fótboltinn HM 2026 í fótbolta Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti „Guð morning!“ Enski boltinn Fleiri fréttir Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Sjá meira