Bernardo Silva yfirgefur City: „Allar góðar sögur enda“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 5. apríl 2026 22:22 Bernardo Silva er á sínu níunda og síðasta tímabili hjá Manchester City. getty/Simon Stacpoole Eftir 4-0 sigurinn á Liverpool í ensku bikarkeppninni í gær staðfesti Pep Lijnders, aðstoðarþjálfari Manchester City, að fyrirliðinn Bernardo Silva myndi yfirgefa félagið þegar samningur hans við það rennur út í sumar.
Silva kom til City frá Monaco 2017 og lék sinn 450. leik fyrir félagið í sigrinum á Liverpool í gær. Silva var gerður að fyrirliða City fyrir þetta tímabil. Samningur Silvas við City rennur út í sumar og samkvæmt Lijnders leitar portúgalski miðjumaðurinn þá á önnur mið. „Þú fyllir ekki skarðið með öðrum leikmanni því sá leikmaður er ekki til,“ sagði Lijnders sem stýrði City í gær þar sem Pep Guardiola var í leikbanni. „Bernardo Silva er einstakur. Hvernig hann stjórnar leikjum, hvernig hann hreyfir sig, tekur við boltanum, leiðir liðið og sér lausnirnar. Allir þessir þættir. Þetta verður erfitt því þegar hann spilar ekki með sérðu hversu mikið hans er saknað. Ímyndaðu þér heilt tímabil án hans.“ Lijnders vonast eftir að Silva kveðji City með stæl. „Allar góðar sögur enda og ég vona að hann njóti síðustu viknanna og kveðji vel. Hann verðskuldar alla athyglina,“ sagði Lijnders. Fyrir landsleikjahléið varð City deildarbikarmeistari eftir að hafa sigrað Arsenal, 2-0, í úrslitaleik á Wembley. Það var átjándi titillinn sem Silva vann sem leikmaður City. Silva, sem er 31 árs, hefur meðal annars verið orðaður við Barcelona og Juventus.
Enski boltinn Manchester City Tengdar fréttir Haaland með þrennu þegar City rúllaði yfir Liverpool Erling Haaland skoraði þrennu þegar Manchester City vann öruggan sigur á Liverpool, 4-0, í fyrsta leik átta liða úrslita ensku bikarkeppninnar. Þetta er áttunda árið í röð sem City kemst í undanúrslit bikarkeppninnar. 4. apríl 2026 13:35 Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Fótbolti „Enski boltinn er annar heimur“ Enski boltinn Fleiri fréttir Grealish í agabanni hjá Everton Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað „Enski boltinn er annar heimur“ „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Verða án Sesko fram í janúar „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Guð morning!“ Sjá meira
Haaland með þrennu þegar City rúllaði yfir Liverpool Erling Haaland skoraði þrennu þegar Manchester City vann öruggan sigur á Liverpool, 4-0, í fyrsta leik átta liða úrslita ensku bikarkeppninnar. Þetta er áttunda árið í röð sem City kemst í undanúrslit bikarkeppninnar. 4. apríl 2026 13:35