Rifnar treyjur og rauð spjöld: Albert og Suslov sáu rautt eftir að upp úr sauð Aron Guðmundsson skrifar 4. apríl 2026 18:20 Leikmenn voru fljótir á vettvang til að slíta menn í sundur. Vísir/Getty Það hitnaði verulega í kolunum milli Alberts Guðmundssonar, leikmanns Fiorentina og Tomás Suslov, leikmanns Verona er liðin mættust í ítölsku úrvalsdeildinni í dag. Báðir leikmenn fengu að líta rauða spjaldið þegar upp úr sauð milli þeirra.
Fiorentina hafði betur í leiknum, 0-1 eftir mark Nicoló Fagioli á 82.mínútu. Það var skömmu eftir mark Fagioli þegar að upp úr sauð milli leikmanna liðanna. Verona fékk aukaspyrnu rétt fyrir utan teig Fiorentina og fannst leikmönnum liðsins að Albert stæði of nálægt spyrnumönnum Verona. Téður Suslov sem og liðsfélagi hans hjá Verona, Jean-Daniel Akpro mættu til þess að færa Albert aftar en áttu ekki erindi sem erfiði og fóru hlutirnir fljótlega úr böndunum. Það varð allt vitlaust inn á vellinumVísir/Getty Suslov tók harkalega á Alberti sem var skiljanlega ekki sama um það og streittist á móti. Engin högg voru veitt en bæði Albert og Suslov enduðu með rifnar treyjur sem segir sitthvað um átökin þeirra á milli. Dómari leiksins hafði engan húmor fyrir þessu og gaf þeim báðum rauða spjaldið. Aðdragandi ósættisins alls ekki mikill en spennustigið í leiknum hátt og tíminn naumur fyrir Verona til þess að jafna. Dómari leiksins sýndi bæði Suslov og Alberti rauða spjaldiðVísir/Getty Hvort rauðu spjöldin hafi átt rétt á sér skal látið ósagt en vel hefði verið hægt að réttlæta að leikmenn hefðu fengið að líta gul spjöld fyrir sinn þátt í ringulreiðinni.
Ítalski boltinn Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport „Guð morning!“ Enski boltinn Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn Fleiri fréttir Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristinn og Kristinn „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Sjá meira