Golf

Hafnar fyrirliðasæti í Ryder-bikarnum

Valur Páll Eiríksson skrifar
Woods tekur ekki þátt í Ryder-bikarnum á Írlandi á næsta ári samkvæmt yfirlýsingu PGA.
Woods tekur ekki þátt í Ryder-bikarnum á Írlandi á næsta ári samkvæmt yfirlýsingu PGA. James Gilbert/TGL/TGL Golf via Getty Images

PGA lýsti því yfir í gær að Tiger Woods hafi hafnað þátttöku og fyrirliðasæti Ryder-liðs Bandaríkjanna fyrir Ryder-bikarinn milli úrvalsliða Bandaríkjanna og Evrópu sem fram fer á Írlandi á næsta ári. Woods er á leið í meðferð eftir bílslys í síðustu viku.

Woods er kominn í ótímabundið frí frá golfi eftir að hafa valdið bílslysi um síðustu helgi. Lyfseðilsskyld verkjalyf fundust á Tiger þegar hann var handtekinn eftir bílslysið og hann er ákærður fyrir akstur undir áhrifum.

Hann ákvað í kjölfarið að fara í meðferð og mun sækja slíka utan Bandaríkjanna.

Woods hafði verið orðaður við Ryder-lið Bandaríkjanna fyrir næsta ár og að hann yrði fyrirliði liðsins. Woods hefur ekki tekið þátt í Ryder-bikarnum síðan árið 2018 og keppt allt átta sinnum frá 1997.

PGA staðfesti í yfirlýsingu í gærkvöld að Woods myndi hafna fyrirliðasætinu. Honum var jafnframt hrósað fyrir að setja heilsu sína í fyrsta sæti og óskað góðs gengis.


Tengdar fréttir

Tiger rýfur þögnina og ætlar að leita sér hjálpar

Bandaríski kylfingurinn Tiger Woods hefur nú í fyrsta sinn tjáð sig opinberlega eftir að hann var handtekinn í síðustu viku. Tiger mun stíga tímabundið til hliðar frá golfi og sviðsljósinu til að leita sér hjálpar og einbeita sér að heilsu sinni.

Tiger Woods heldur fram sakleysi sínu

Bandaríski kylfingurinn Tiger Woods hefur neitað sök í ákærum á hendur honum í kjölfar handtöku á föstudaginn í síðustu viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×