Tilkynnt um andlát pabba strax eftir tapið Sindri Sverrisson skrifar 22. mars 2026 22:22 Igor Tudor dapur í bragði á leiknum gegn Nottingham Forest í dag. Hann fékk svo mun verri fréttir eftir leikinn. Getty/Robin Jones Athygli vakti að Igor Tudor þjálfari Tottenham, sem þykir afar valtur í sessi, skyldi ekki veita viðtöl eftir tapið gegn Nottingham Forest í dag en ástæðan er mun alvarlegri en nokkur fótboltaleikur.
Bruno Saltor, aðstoðarmaður hins 47 ára gamla Tudors, mætti í viðtöl í hans stað og gaf þær skýringar að upp hefði komið erfitt fjölskyldumál. Króatískir miðlar hafa nú greint frá því að Tudor, sem er Króati, var að missa föður sinn, Mario. Mun honum hafa verið sagt frá andlátinu strax að loknu 3-0 tapinu í dag. 🚨 Tottenham assistsnt coach Bruno Saltor: “Igor Tudor doesn’t speak today as he’s dealing a personal family issue, obviously it's a difficult moment for him”. pic.twitter.com/N9YRZicKTa— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) March 22, 2026 Dagurinn hefur því verið hreinasta martröð fyrir Tudor sem enn hefur ekki fagnað sigri í ensku úrvalsdeildinni. Undir hans stjórn hefur Tottenham tapað fjórum deildarleikjum og gert eitt jafntefli, gegn Liverpool á Anfield, auk þess að falla úr keppni í Meistaradeild Evrópu gegn Atlético Madrid. Tapið gegn Forest í dag þýðir að Tottenham er komið niður í fjórða neðsta sæti úrvalsdeildarinnar og er aðeins stigi fyrir ofan West Ham, nú þegar hlé vegna landsleikja tekur við. Unlucky 13 😬Tottenham are now without a win in 13 games, their longest streak in the top flight in 91 years... they went on to get relegated that season... pic.twitter.com/ksVfietoij— Football on TNT Sports (@footballontnt) March 22, 2026 Tudor tók við Tottenham í frjálsu falli, af Dananum Thomasi Frank í febrúar, og átti að stýra því út leiktíðina. Liðið hefur núna ekki unnið neinn af síðustu 13 deildarleikjum sínum, eða síðan í lok síðasta árs, og því hefur hávær orðrómur um að forráðamenn Tottenham gætu nýtt landsleikjahléið í að skipta aftur um mann í brúnni.
Enski boltinn Mest lesið Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Handbolti Enn eitt sjokkið í París: „Ég vil bara hætta í tennis núna“ Sport Leyfislaus CrossFit-dómari og keppandinn hans í tveggja ára bann Sport Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Íslenski boltinn „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Enski boltinn Samkomulag náðst milli Iraola og Liverpool Fótbolti Fleiri fréttir Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Sjá meira