Vilja núna taka fimmtíu ára gamlan titil af Marokkó Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. mars 2026 23:01 Það er óhætt að segja að það sé eftirmáli af úrslitaleik Marokkó og Senegal. Hér má sjá Marokkómanninn Brahim Diaz ræða málin við Senegalann Idrissa Gana Gueye. Getty/Torbjorn Tande Farsinn í kringum Afríkukeppni landsliða í fótbolta heldur áfram enda hefur önnur þjóð bent á sláandi ósamræmi í refsingum í sögu keppninnar.
Knattspyrnusamband Gíneu hefur nefnilega beðið Knattspyrnusamband Afríku um að endurskoða úrslitaleik Afríkukeppninnar frá árinu 1976. Gíneumenn segja að Marokkó hafi þá gengið af velli til að mótmæla dómi en komið aftur inn á og unnið mótið og að svipaðar agareglur ættu að gilda um sögulega leiki. Dæmdur 3-0 sigur Upphafið að þessari beiðni er auðvitað úrslitaleikur Afríkukeppninnar í ár þar sem Marokkó var dæmdur sigur tveimur mánuðum eftir að úrslitaleiknum lauk. Senegal sigraði Marokkó 1-0 í úrslitaleiknum í janúar en Knattspyrnusamband Afríku ógilti úrslitin á þriðjudag vegna þess að leikmenn Senegal gengu af velli til að mótmæla þegar gestgjafarnir Marokkó fengu vítaspyrnu í uppbótartíma. Sautján mínútur Leikurinn hófst aftur eftir sautján mínútna töf og vítaspyrna Brahim Diaz fyrir Marokkó var varin. Leikurinn fór í framlengingu þar sem Pape Gueye frá Senegal skoraði sigurmarkið. Eftir áfrýjun frá marokkóska knattspyrnusambandinu úrskurðaði CAF að með því að ganga af velli hefði Senegal gefið leikinn og úrslitin yrðu skráð 3-0, Marokkó í vil. Úrslitaleikurinn 1976 Þetta er annar Afríkumeistaratitill Marokkó en hinn vannst einmitt árið 1976 eftir 1-1 jafntefli við Gíneu í óopinberum úrslitaleik. Þá endaði mótið í fjögurra þjóða úrslitariðli. Gínea var stigi á eftir Marokkó fyrir síðasta leikinn og varð því að vinna lokaleikinn en Marokkó nægði jafntefli. Gínea komst yfir með marki Chérif Souleymane á 33. mínútu og þannig var staðan þar til að Baba jafnaði á 86. mínútu. Marokkó varð því Afríkumeistari, titil sem þjóðin hafði ekki unnið fyrr en Knattspyrnusamband Afríku úrskurðaði í vikunni. View this post on Instagram A post shared by SPORTbible (@sportbible)
Afríkukeppnin í fótbolta Mest lesið PSG - Arsenal | Bikarinn sem beðið hefur verið eftir Fótbolti Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Betra liðið tapaði” Fótbolti Fleiri fréttir Þór/KA - Víkingur 4-6 | Víkingur Reykjavík á sigurbraut Óskar Smári: „ Ánægður með varnarleikinn, stigin og úrslitin“ Uppgjörið: FH - Fram 6-2 | FH-liðið hrökk í gang í seinni hálfleik með Niu í broddi fylkingar PSG - Arsenal | Bikarinn sem beðið hefur verið eftir Sjö marka veisla og Skagasigur gegn lánlausum FH-ingum Gri/Nja - Breiðablik 0-5 | Blikar refsuðu heimakonum grimmilega Stjarnan - ÍBV 2-0 | Garðbæingar á sigurbraut Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Timber klár í slaginn Wenger treystir á Arteta: „Eitthvað sem maður hugsar um og gleymir aldrei“ Slot rekinn frá Liverpool Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? HM minningin: Tár vandræðagemlingsins bræddu hjörtu heillar þjóðar „Betra liðið tapaði” „Ég er rígmontinn af þeim” Gordon mættur til Börsunga „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ „Allir tala um hvað ég er gamall“ Fara í efstu deild þrátt fyrir jafntefli í umspili Böðvar: Drullu mikilvægur sigur Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Fram - Breiðablik 4-3 | Fara fljúgandi í landsleikjahléið Bjóða tónleikamiða í skiptum við Yamal Valur - Þróttur 0-1|Sigra manni færri á útivelli „Amma mín heitin gæti látið Vitinha spila vel“ Mourinho kynntur til leiks eftir kosningar Brann kveður Jón Dag Óskar Hrafn framlengir í Vesturbæ Þurfti að yfirgefa liðið fyrir úrslitaleikinn Sjá meira