FIFA refsar Ísraelum en þó aðeins með sekt Sindri Sverrisson skrifar 20. mars 2026 09:32 Stuðningsmenn Beitar Jerusalem hafa orðið uppvísir að ítrekuðu kynþáttaníði. Getty/Laszlo Szirtesi Ísraelska knattspyrnusambandið þarf að greiða sekt upp á 150.000 svissneska franka, eða tæpar 24 milljónir króna, í sekt fyrir að bregðast ekki við ítrekuðu kynþáttaníði.
Palestínska knattspyrnusambandið kvartaði undan ísraelska sambandinu á þingi FIFA í maí 2024 og vildi að Ísraelar yrðu settir í bann. Sú varð ekki niðurstaðan en ísraelska sambandið þarf engu að síður að greiða fyrrgreinda sekt. Samkvæmt niðurstöðu aganefndar FIFA er sektin tilkomin vegna þess að ísraelska sambandið gerði ekkert til að refsa einu af ísraelsku félagsliðunum, Beitar Jerusalem, þrátt fyrir augljósa og ítrekaða mismunun. „Stuðningsmenn hafa sýnt af sér viðvarandi og vel skráða kynþáttafordóma,“ sagði í skýrslu nefndarinnar um stuðningsmenn Beitar. „Notkun félagsins á slagorðum eins og „að eilífu hreint“ og ítrekuð kynþáttaníðsköll eins og „hryðjuverkamaður“ sem beint er að arabískum leikmönnum eru ekki einangruð atvik heldur hluti af kerfisbundnu hegðunarmynstri sem brýtur í bága við grundvallarreglur um mannsæmandi hegðun og veldur íþróttinni óorði,“ sagði þar einnig. Stór borði á næstu leikjum skilyrði Nefndin undirstrikaði að framferðið sem Beitar Jerusalem-menn hefðu komist upp með væri aðeins lítið dæmi um almenna vanrækslu af hálfu ísraelska knattspyrnusambandsins. Þá hefur Ísraelum verið gert að hafa stóran vel sýnilegan borða á næstu þremur heimaleikjum sínum í FIFA-keppnum, með áletruninni: „Knattspyrna sameinar heiminn – Nei við mismunun“. Að auki þarf ísraelska sambandsins að nýta þriðjung sektarupphæðarinnar í aðgerðir sem fyrirbyggja áframhaldandi mismunun. FIFA mun hins vegar ekkert aðhafast vegna kvörtunar palestínska sambandsins yfir því að félagslið á landsvæði annars knattspyrnusambands (Palestínu) fengi að keppa í ísraelsku deildinni. Svar FIFA var á þá leið að lagaleg óvissa ríkti um hverjum landsvæðið á Vesturbakkanum tilheyrði.
FIFA Átök í Ísrael og Palestínu Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Fótbolti Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Íslenski boltinn Bræður bættu stigamet pabba þeirra Körfubolti Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn „Guð morning!“ Enski boltinn Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Körfubolti Fleiri fréttir Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Sjá meira